Verðhækkun á mjólk 11. maí 2026
Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur.
Eftirfarandi verðbreytingar munu taka gildi mánudaginn 11. maí 2026.
- Lágmarksverð 1.fl. mjólkur til bænda hækkar um 2,47% og fer úr 142,65 kr./ltr í 146,17 kr./ltr.
- Heildsöluverð mjólkur og mjólkurvara sem nefndin verðleggur hækkar jafnframt um 2,19%.
Hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda er til komin vegna kostnaðarhækkana við framleiðslu mjólkur frá síðustu verðákvörðun sem byggði á verðlagi í desember 2025. Verðlagsgrundvöllur kúabús hækkar um 2,47% frá desember 2025 til mars 2026. Í mars mánuði er gert ráð fyrir áburðarkaupum bænda sem skýrir að ákveðnu leyti hækkun verðlagsgrundvallar umfram almennar verðlagsbreytingar.
Heildsöluverð á mjólk og mjólkurvörum hækkar um sem nemur veginni kostnaðarhækkun vegna hráefniskaupa og hækkun vinnslu- og dreifingarkostnaðar. Síðasta verðlagning byggði á verðlagi í desember 2025 og er reiknuð hækkunarþörf vinnslu- og dreifingarkostnaðar 1,89%.
Breytingar á heildsöluverði mjólkur og mjólkurvara byggja á kostnaðarbreytingum frá desember 2025 til mars 2026 en á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 1,9%.
Auðhumla
Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.
Lesa meiraGæðaráðgjafar
Hans Egilsson: Sími 861-4775
Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772
Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397
Ásgeir Hrafn Símonarson: Sími 836 4770
RM rannsókn: Sími 450-1240

