Útjöfnun á ónotuðu greiðslumarki 2025
Heildarmagn lítra sem kemur til útjöfnunar 2025 er rétt um 7,7 milljónir lítra. Útjöfnun ársins 2025 verður því allt að 10,59% sem er þá allnokkru lægra en árið 2024 þegar útjöfnun ársins var 16,97% og sömuleiðis árið 2023 þegar útjöfnun ársins var 16,13%.
Útjöfnun upp á allt að 10,59% þýðir að þeir mjólkurframleiðendur sem lögðu inn mjólk í afurðastöð sem nemur allt að 10,59% af skráðu greiðslumarki búsins munu fá þá umframmjólk greidda á fullu afurðastöðvarverði þess mánaðar sem hún var lögð inn. Þeir 147 mjólkurframleiðendur sem lögðu inn í afurðastöð meira en sem nemur 10,59% af skráðu greiðslumarki búsins framleiddu þá hina "raunverulegu umframmjólk", sem nemur alls 4.908.229 lítrum.
Framkvæmd útjöfnunar fer samkvæmt 11 gr. reglugerðar 348/2022 (með síðari breytingum) um stuðning í nautgriparækt þar sem segir: „Skal fyrst greitt fyrir fyrsta prótsentustig sem greiðslumarkshafi framleiðir umfram eigið greiðslumark og síðan annað prósentustig og svo áfram eftir því sem ónotað greiðslumark gefur tilefni til“.
Vinna við uppgjör skv. ofangreindu fer nú fram og vonir standa til að greiðslur á því uppgjöri geti farið fram samhliða uppgjöri á janúarinnleggi þann 10. febrúar.
Auðhumla
Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.
Lesa meiraGæðaráðgjafar
Hans Egilsson: Sími 861-4775
Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772
Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397
Ásgeir Símonarson: Sími 836 4770
RM rannsókn: Sími 450-1242

