Nýr mælikvarði á líftölu væntanlegur - Bondi 2 - BETA
Vinnuhópur á vegum SAM (Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði) vinnur nú að endurskoðun á núgildandi reglum um flokkun og verðfellingar á hrámjólk frá mjólkurframleiðendum sem tóku gildi 01. janúar 2017. Í endurskoðunarvinnu starfshópsins hefur verið kannað hvernig gæðaflokkun hrámjólkur er háttað á hinum Norðurlöndunum og ákveðið að horfa á sem fyrirmynd það gæðaflokkunarkerfi sem Norðmenn tóku upp árið 2023.
Helstu ástæður endurskoðunarinnar á þessum tímapunkti eru eftirfarandi:
- Mjólkurframleiðendur hafa kallað eftir því í nokkurn tíma að horft sé til hvers mjólkurinnleggs fyrir sig en ekki notast við niðurstöður á einu tanksýni í viku (vikusýni) til að ákvarða greiðslur fyrir allt innlegg vikunnar.
- Nýtt mjólkurafurðakerfi er nú í smíðum fyrir Auðhumlu og KS og ákveða þarf í forritunarvinnunni hvaða forsendur eiga að liggja að baki hvað varðar útreikninga á greiðslufyrirkomulagi til mjólkurframleiðenda.
- Á árinu 2023 var tekið í notkun nýtt mælingartæki hjá Rannsóknarstofu mjólkuriðnaðarins (RM) sem mælir líftölu (bakteríur) í mjólk. Nýja mælingartækið notar s.k. IBC einingar (bakteríueiningar) sem er sambærilegt og gert er annars staðar á Norðurlöndunum. Nýja mælingartækið er nákvæmara en gamla mælingartækið sem fyrir var á RM og nær að telja fleiri bakteríur en gamla tækið. Eðlilega sýnir nýja mælingartækið því nokkuð hærri niðurstöðutölur en gamla tækið og til að bregðast við þessu hefur RM umreiknað niðurstöður líftölumælinga til lækkunar skv. ákveðinni forskrift frá því að það var tekið í notkun til að þær falli að núgildandi reglum nr. 1210 um flokkun og verðfellingar vegna líftölu. Í Noregi, sem notar þessa sömu mælingartækni og RM hefur nú tekið upp, hafa mælingarniðurstöðurnar verið notaðar beint og enginn umreikningur notaður. Flokkunarviðmið vegna líftölu í Noregi er því nokkuð frábrugðin því sem verið hefur hér á landi og fyrir þá sem ekki þekkja til gæti sá misskilningur komið upp að hér á landi væru gæðakröfur vegna líftölu strangari en í Noregi. Svo er þó ekki heldur eru kröfurnar nokkuð sambærilegar, aðeins sitt hvor mælikvarðinn notaður.
Góð kynning á nýjum reglum varðandi flokkun og verðfellingar á hrámjólk mun fara fram á haustmánuðum - en á þessum tímapunkti viljum við einbeita okkur sérstaklega að því að kynna fyrir ykkur mjólkurframleiðendum það atriði sem er númer 3 hér að ofan, þ.e. nýjan mælikvarða á líftölu.
Ætlunin er að umreikningi hjá RM verði hætt þegar nýjar flokkunarreglur taka gildi og þar með mögulegt að bera saman rannsóknarniðurstöður á líftölu milli landa með beinum hætti. Um verður að ræða talsverða breytingu fyrir bændur sem þurfa að venjast nýjum og hærri mælikvarða hvað varðar líftölumælingar en verið hefur.
Í viðleitni okkar til að byrja að venja bændur við nýjan mælikvarða á líftölu setjum við nú í loftið hluta af nýjum bændavef Auðhumlu. Þessi hluti nýja bændavefsins sýnir niðurstöðutölur mjólkursýna (tanksýna) með þeirri viðbót að hann sýnir bæði gildi líftölunnar samkvæmt núverandi mælikvarða sem og verðandi gildi líftölunnar samkvæmt nýja mælikvarðanum. Með þessum upplýsingum vonumst við til að mjólkurframleiðendur átti sig á muninum á þessum tveimur mælikvörðum, þ.e. þetta er sama mjólkin, aðeins sitthvor mælikvarðinn á líftölunni.
Þar sem samband núverandi mælikvarða og nýja mælikvarðans er veldisfall en ekki stuðull er mikil teygni í nýja kvarðanum, þ.e. því hærri sem talan er í núverandi mælikvarða sem við þekkjum, því hærri verður hann í nýja kvarðanum. Sem dæmi er 20 í núverandi mælikvarða, sem við þekkjum sem hámarksgildi fyrir úrvalsmjólk, sambærilegt og 65 í nýjum mælikvarða. Að sama skapi er 80 í núverandi kvarða, sem við þekkjum sem hámarksgildi fyrir 1. flokks mjólk, talan 383 í nýjum mælikvarða.
Með því að smella á „Bændavefur“ á heimasíðu Auðhumlu mun nú opnast flettigluggi þar sem ykkur gefst kostur á að velja á milli „Bondi“ og „Bondi 2 - BETA.“ Með því að smella á annað hvort opnast innskráningarsíða þar sem krafist er notendanafns og lykilorðs. Sama notendanafn og lykilorð gildir fyrir báðar síðurnar.
„Bondi“ er gamli bændavefurinn óbreyttur og sýnir sömu gögn og fyrr, þ.e. innleggstölur og niðurstöður vikusýna og kýrsýna.
„Bondi 2 – BETA“ er nýi bændavefurinn þar sem notendur geta nú valið á milli tveggja flipa, þ.e. „Vikusýni“ og „Önnur tanksýni“. Flipinn „Vikusýni“ sýnir að mestu sömu upplýsingar og gamli vefurinn, þ.e. niðurstöður vikusýna sem notaðar eru til grundvallar greiðslum fyrir innlegg viðkomandi viku. Flipinn „Önnur tanksýni“ sýnir niðurstöður mælinga á þeim tanksýnum sem ekki eru vikusýni en RM hefur um nokkurra mánaða skeið mælt öll tanksýni sem berast í þeim tilgangi að safna gögnum fyrir vinnuhóp SAM. Síðar í haust verður svo bætt við þriðja flipanum „Öll sýni“ sem inniheldur þá bæði vikusýni og önnur tanksýni í einni töflu. Gert er ráð fyrir að þegar nýjar flokkunarreglur taka gildi verði öll tanksýni alltaf mæld og taflan á bændavefnum því aðeins ein. Uppröðun á mæligildum verða aðeins breyttar frá gamla bændavefnum og þar má sjá gildi líftölunnar samkvæmt þeim mælikvarða sem við þekkjum (núverandi) og líka samkvæmt nýja mælikvarðanum (verðandi). Líftölugildin, samkvæmt núverandi og verðandi mælikvarða eru auðgreind til að vekja á þeim sérstaka athygli. Mælingaaðferðir og gildi fyrir frumutölu og fríar fitusýrur eru óbreyttar. Þessar töflur eru einungis byrjunin á umhverfi nýja bændavefsins og við sjáum fram á ýmsa möguleika varðandi framsetningu gagnanna, s.s. myndræna framsetningu þeirra.
Athugið að ekkert mun breytast í greiðslum fyrir hrámjólk fyrr en ný reglugerð um flokkun og verðfellingar á hrámjólk hefur tekið gildi eftir ítarlega kynningu meðal mjólkurframleiðenda. Fram að þeim tíma verður horft til vikusýna við uppgjör skv. gildandi reglugerð líkt og verið hefur.
Ef ykkur vantar aðgangsupplýsingar að Bændavef Auðhumlu eða hafið einhverjar fyrirspurnir varðandi þetta, vinsamlegast sendið tölvupóst á netfangið mjolk@audhumla.is eða hringið í síma 450-1106 eða 450-1107.
Auðhumla
Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.
Lesa meiraGæðaráðgjafar
Hans Egilsson: Sími 861-4775
Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772
Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397
Ásgeir Hrafn Símonarson: Sími 836 4770
RM rannsókn: Sími 450-1240

