Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur 1. september 2026
Markaður með greiðslumark í mjólk var haldinn þann 1. september. Atvinnuvegaráðuneytinu bárust 89 gild tilboð um kaup og sölutilboð voru 7.
Tilboð voru send með rafrænum hætti í gegnum Afurð og liggur niðurstaða markaðarins nú fyrir.
Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð, sem við lok tilboðsfrests var 439 kr. fyrir hvern lítra.
Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverðið 270 kr./ltr. - sem er 20 kr hærra á lítra en verið hefur á síðustu tilboðsmörkuðum.
- Fjöldi gildra tilboða um sölu á greiðslumarki mjólkur voru 7.
- Fjöldi gildra tilboða um kaup voru 89.
- Fjöldi kauptilboða undir jafnvægisverði var 17.
- Ekkert sölutilboð var yfir jafnvægisverði.
- Greiðslumark sem boðið var fram (sölutilboð) voru alls 379.072 lítrar
- Greiðslumark sem óskað var eftir (kauptilboð) voru 3.985.000 lítrar
- Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða (jafnvægismagn) voru 379.072 lítrar að andvirði 102.349.440,- kr.
- Seljendur með tilboð á jafnvægisverði eða lægra eru 7 talsins og selja 100% af sínu framboðna magni.
- Kaupendur með tilboð á jafnvægisverði eða hærra eru 72 talsins og fá 11% af eftirspurðu magni í sinn hlut.
- Af kauptilboðum eru 7 sem fá úthlutun úr forgangspotti nýliða.
Sala greiðslumarks fer nú fram samkvæmt gildum tilboðum. Atvinnuvegaráðuneytið mun nú senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram. Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast í Afurð.
Auðhumla
Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.
Lesa meiraGæðaráðgjafar
Hans Egilsson: Sími 861-4775
Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772
Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397
Ásgeir Hrafn Símonarson: Sími 836 4770
RM rannsókn: Sími 450-1240

