5. nóvember 2026

Niðurstöður tilboðsmarkaðar fyrir greiðslumark mjólkur 1. nóvember 2026

Markaður með greiðslumark í mjólk var haldinn þann 2. nóvember þar sem Atvinnuvegaráðuneytinu bárust 59 gild tilboð um kaup og sölutilboð voru 4.

Í gildi er ákvörðun ráðherra um að hámarksverð skuli vera þrefalt afurðastöðvaverð, sem við lok tilboðsfrests var 445 kr. fyrir hvern lítra.

Við opnun tilboða kom fram jafnvægisverðið 300 kr./ltr. en jafnvægisverð markaðarins þann 1. september sl. var 270 kr/ltr. Þess ber að geta að á tilboðsmarkaði 1. nóvember er verið að eiga viðskipti með greiðslumark næsta árs, þ.e. greiðslumark sem kemur til nýtingar verðlagsárið 2027. 

  • Fjöldi gildra tilboða um sölu á greiðslumarki mjólkur voru 4.
  • Fjöldi gildra tilboða um kaup voru 59.
  • Fjöldi kauptilboða undir jafnvægisverði var 45.
  • Sölutilboð yfir jafnvægisverði var 1.
  • Greiðslumark sem boðið var fram (sölutilboð) voru alls 563.487 lítrar
  • Greiðslumark sem óskað var eftir (kauptilboð) voru 2.801.000 lítrar
  • Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða (jafnvægismagn) voru 484.752 lítrar að andvirði 145.425.600,- kr.
  • Seljendur með tilboð á jafnvægisverði eða lægra eru 3 talsins og selja 100% af sínu framboðna magni.
  • Kaupendur með tilboð á jafnvægisverði eða hærra eru 13 talsins og fá 69% af eftirspurðu magni í sinn hlut.
  • Af kauptilboðum er 1 sem fær úthlutun úr forgangspotti nýliða.

 

Sala greiðslumarks fer nú fram samkvæmt gildum tilboðum. Atvinnuvegaráðuneytið mun nú senda öllum tilboðsgjöfum upplýsingar um afgreiðslu tilboða og gera breytingar á skráningu greiðslumarks þegar uppgjör hefur farið fram. Upplýsingar um greiðslumark sitt geta bændur nálgast í Afurð.

Sjá upprunalega frétt á vef stjórnarráðsins

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Ásgeir Hrafn Símonarson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1240