4. september 2026

Meðalaldur mjólkurframleiðenda á Íslandi

Nýlega var gerð athugun á meðalaldri mjólkurframleiðenda á Íslandi. Notast var við ártalið sem fram kemur í kennitölum þeirra einstaklinga sem skráðir eru fyrir mjólkurinnleggi til afurðastöðvanna. Í þeim tilvikum þar sem lögaðili (fyrirtæki) er skráður fyrir mjólkurinnleggi var notast við kennitölur stjórnarmanna og framkvæmdastjóra. 

Athugunin leiddi í ljós að meðalaldur mjólkurframleiðenda nú um stundir er 54,2 ár sem þýðir að meðalmjólkurframleiðandinn er fæddur síðla árs 1971.

Flestir mjólkurframleiðendur, eða 32,4% eru fæddir á árabilinu 1960-1969 en annars er aldursskiptingin eftirfarandi:

Fæðingaráratugur Hlutfall
1930 - 1939 0,5%
1940 - 1949 2,4%
1950 - 1959 14,2%
1960 - 1969 32,4%
1970 - 1979 19,3%
1980 - 1989 20,1%
1990 - 1999 9,9%
200 - 2009 1,3%
ALLS 100%

Elstu einstaklingarnir sem enn eru skráðir fyrir mjólkurframleiðslu eru fæddir árið 1937 (89 ára - 2 aðilar) og sá yngsti er fæddur árið 2005 (21 árs)
Allir þessir aðilar, þ.e. elstu og yngstu, eru skráðir sem félagsaðilar í félagsbúum eða stjórnarmenn í ehf. félagi ásamt öðrum. Enginn þeirra stendur því einn að mjólkurframleiðslu á viðkomandi bæ.

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Ásgeir Hrafn Símonarson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1240