Huppa 100 ára
Þriðjudaginn 3. nóvember n.k. verða liðin 100 ár frá fæðingu ættmóður íslenska kúastofnsins, Huppu frá Kluftum. Í tilefni af þessum tímamótum standa Búnaðarsamband Suðurlands, Hrunamannahreppur og Nautgriparæktarfélag Hrunamanna fyrir málþingi og afmælisfagnaði á sjálfan afmælisdaginn, 3.nóvember í félagsheimilinu á Flúðum. Málþingið hefst kl. 11.00 og áætlað er að það standi til kl. 15.20 en þá tekur við veglegt kaffisamsæti til heiðurs afmæliskúnni. Í hádeginu mun Auðhumla svf. bjóða upp á veitingar sem saman standa af mjólkurafurðum afkomenda Huppu en líklega er hægt að rekja ættir nánast allra nautgripa á landinu til þessa merkisgrips.
Huppa er - eða var - nefnilega sérstakur gripur, ekki bara á íslenskan mælikvarða heldur einnig á heimsvísu. Ólíklegt er að nokkur kýr í heiminum eigi jafn stóra hlutdeild í erfðamengi nokkurs kúakyns í heiminum eins og hlutur Huppu í íslenska kúastofninum er. Reynt verður að varpa ljósi á ástæður þess á málþinginu. Huppa skipar líka sérstakan sess í augum áhugamanna um nautgriparækt, íslenskra kúabænda og ekki síst Hrunamanna. Sem dæmi um hve miklar mætur menn hafa á henni og hennar orðspori er salur í félagsheimilinu á Flúðum nefndur Huppusalur og gagnagrunnur íslenskrar nautgriparæktar ber heiti Huppu.
Málþingið og afmælisfagnaðurinn er öllum opinn og áhugamenn um nautgripi og nautgriparækt sérstaklega velkomnir og ættu ekki að láta þennan viðburð fram hjá sér fara. Þá er þetta fullkomið tilefni til að hittast og gera sér glaðan dag um leið og afmæliskýrin verður heiðruð.
Dagskrá
11:00 Setning
11:05 Kluftir í Hrunamannahreppi – Björn Bjarndal Jónsson
11:25 Æviferill Huppu 12 á Kluftum og afkvæma hennar – Jón Viðar Jónmundsson
11:45 Helgi á Hrafnkelsstöðum – Gunnlaugur Karlsson
12:05 Hádegishlé
12:35 Hvað vitum við um erfðamengi Huppu? – Egill Gautason
12:55 Áhrif Kluftastofnsins á sunnlenska nautgriparækt og borgfirska – Magnús B. Jónsson
13:15 Innrás Klufta-kynsins í Eyjafjörð – Sigurgeir B. Hreinsson
13:35 Fyrsta dreifing erfðavísa Huppu 12 í ýmsum héruðum – Jón Viðar Jónmundsson
13:55 Umræður og stutt fundarhlé
14:10 Kynning á Huppu-horninu – Marta Esther Hjaltadóttir
14:20 Kúalitir – þróun á dreifingu í íslenska stofninum – Sigríður Bjarnadóttir
14:40 Örfá atriði um nöfn nautgripa – Guðmundur Jóhannesson
15:00 Erfðahlutdeild Huppu frá Kluftum í íslenska kúastofninum – Jón Hjalti Eiríksson og Jón Viðar Jónmundsson
15:20 Málþingsslit og afmæliskaffi Huppu 100 ára
Auðhumla
Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.
Lesa meiraGæðaráðgjafar
Hans Egilsson: Sími 861-4775
Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772
Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397
Ásgeir Hrafn Símonarson: Sími 836 4770
RM rannsókn: Sími 450-1240

