27. febrúar 2026

Hækkun á söfnunarkostnaði mjólkur 1. mars 2026

Stjórn Auðhumlu svf. samþykkti á fundi sínum þann 26. febrúar 2026 að kostnaður sem bændur greiða fyrir mjólkursöfnun skuli verða 5,90 kr. á hvern lítra frá og með 1. mars 2026. Um er að ræða hækkun um 0,10 kr. á lítra en söfnunarkostnaður mjólkur hefur verið 5,80 kr á lítra frá 1. mars 2025.

Hækkunin nú stafar fyrst og fremst af hækkun á launa- og viðhaldskostnaði á árinu 2025 en á móti þeim hækkunum kemur að meira mjólkurmagn var flutt á árinu en nokkru sinni fyrr, eða tæpar 156,8 milljónir lítra af hrámjólk, sem þýðir betri nýtingu á tækjum og mannskap.

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Ásgeir Hrafn Símonarson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1240