4. september 2025

Hækkun á afurðaverði til mjólkurframleiðenda frá 1. september 2025

Verðlagsnefnd búvara ákvað á fundi sínum þann 29. ágúst sl. að hækka lágmarksverð á mjólk til bænda um 1,15% sem skal gilda frá 1. september 2025. Lágmarksverð 1. flokks mjólkur miðað við grundvallarefnainnihald mjólkur fer því úr 139,53 kr/l. í 141,13 kr/l.

Hækkunin nemur mældri hækkun verðlagsgrundvallar frá mars til júní 2025. Síðasta verðhækkun til bænda var þann 12. maí 2025.

Efnainnihald grundvallarmjólkur er nú 4,23% fita og 3,38% prótein. 

Þann 1. september hækkar heildsöluverð ógerilsneyddrar mjólkur í lausu máli um 1,03% vegna hækkunar hráefniskostnaðar og um 0,16% þann 8. september vegna hækkunar vinnslu- og dreifingarkostnaðar, samanlagt úr 156,53 kr./ltr í 158,39 kr./ltr.

Fundargerð verðlagsnefndar búvöru frá 29. ágúst 2025

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1242