Greiðslumark mjólkur 2027
Framkvæmdanefnd búvörusamninga hefur fallist á tillögu SAM um að greiðslumark mjólkur verði 156,1 milljón lítra á árinu 2027. Endanleg ákvörðun er þó í höndum atvinnuvegaráðherra, en nefndin hefur lagt til við hana að greiðslumarkið verði eins og fyrr segir. Að því gefnu að ráðherra staðfesti tillögu nefndarinnar verður greiðslumark ársins 2027 gefið út formlega með reglugerðarbreytingu sem tekur gildi 1. janúar 2027.
Um talsverða aukningu er að ræða á milli ára eða 3,1 milljón lítra - en greiðslumark yfirstandandi verðlagsárs er 153 milljónir lítra.
Tillaga SAM og framkvæmdanefndar búvörusamninga um breytingar á greiðslumarki mjólkur byggist á söluhorfum á því verðefni sem meiri þörf er á hverju sinni til að fullnægja innanlandsþörfum og tryggja eðlilegt birgðahald, í þessu tilfelli á mjólkurfitu. Söluhorfur eru metnar út frá þróun í sölu mjólkurvara liðinna mánaða.
Þróun í greiðslumarki mjólkur 2015 - 2027:
| Ár | Greiðslumark í lítrum | Breyting í lítrum | Breyting í % |
| 2027 | 156.100.000 | +3.100.000 | +2,03% |
| 2026 | 153.000.000 | +1.000.000 | +0,66% |
| 2025 | 152.000.000 | +500.000 | +0,33% |
| 2024 | 151.500.000 | +2.500.000 | +1,68% |
| 2023 | 149.000.000 | +2.500.000 | 1,71% |
| 2022 | 146.500.000 | +1.500.000 | +1,03% |
| 2021 | 145.000.000 | 0 | 0% |
| 2020 | 145.000.000 | 0 | 0% |
| 2019 | 145.000.000 | 0 | 0% |
| 2018 | 145.000.000 | +1.000.000 | +0,69% |
| 2017 | 144.000.000 | +1.000.000 | +5,88% |
| 2016 | 136.000.000 | -4.000.000 | -2,86% |
| 2015 | 140.000.000 | +15.000.000 | +12,00% |
Frá árinu 2021 hefur greiðslumark mjólkur aukist á hverju ári, samtals um 11,1 milljón lítra eða 7,66%
Auðhumla
Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.
Lesa meiraGæðaráðgjafar
Hans Egilsson: Sími 861-4775
Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772
Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397
Ásgeir Hrafn Símonarson: Sími 836 4770
RM rannsókn: Sími 450-1240

