22. október 2026

Fyrirmyndarbú Nautgripabænda BÍ 2026

Á fagfundi nautgriparæktarinnar í dag (22.10.2026) veitti Sigurbjörg Ottesen, formaður Nautgripabænda BÍ, ábúendum að Miðdal í Kjósahreppi viðurkenninguna "Fyrirmyndarbú Nautgripabænda BÍ 2026".

Auðhumla svf. fagnar þessari viðurkenningu og óskar ábúendum innilega til hamingju. Til viðbótar við umsögn Sigurbjargar um þetta fyrirmyndarbú hér að neðan má bæta því við að ábúendur þar hafa margoft fengið viðurkenningu Auðhumlu svf. fyrir úrvalsmjólk á liðnum árum. Þar fara því saman frábærar afurðir og frábær mjólkurgæði.

Umsögn Sigurbjargar Ottesen um fyrirmyndarbúið fylgir hér með:

Ábúendur í Miðdal eru þau Ólöf Ósk Guðmundsdóttir og Hafþór Finnbogason. Hafa þau tekið við keflinu af foreldrum Ólafar, þeim Guðmundi Davíðssyni og Svanborgu Magnúsdóttur á síðustu árum. Á búinu er stunduð mjólkurframleiðsla ásamt sauðfjárrækt og hrossarækt. Á undanförnum árum hefur reksturinn tekið töluverðum breytingum. Byggt var nýtt fjós og kýrnar fluttar í lausagöngu og nú síðast var breytt um mjaltartækni og settur upp mjaltaþjónn.  

Árangur búsins hefur löngum verið eftirtektarverður en á árinu 2012 voru meðalafurðir búsins þær mestu hérlendis eða 8.086 kg. Undir styrkri bústjórn þeirra Ólafar Óskar og Hafþórs hefur þó hvergi verið slakað á og hafa meðalafurðir síðustu ára jafnan verið á bilinu 7 til 8 þús. kg þrátt fyrir breytingar og innleiðingu nýrrar tækni - en slíkar umbyltingar valda oft tímabundinni afurðaminnkun.  

Þau Ólöf Ósk og Hafþór sinna ræktunarstarfi af alúð og allt annað en tilviljun ræður því hvaða naut er valið á hverja kú fyrir sig í Miðdal - enda standa fáir Hafþóri framar þegar kemur að þekkingu á ætt og uppruna sæðinganautanna. Þau þekkir hann sem væru hans eigin. Undanfarin misseri hafa þessi markvissu vinnubrögð borið góðan ávöxt en á síðastliðnu ári voru tvö af þeim 32 nautum sem keypt voru að Hesti frá Miðdal.  

Miðdalur hefur um árabil aukið hróður íslensks landbúnaðar og borið rómaðri gestrisni íslenskra bænda gott orð með móttöku leik- og grunnskólabarna. Börnin fá þar ekki einungis að sjá dýrin og upplifa sveitina heldur eru þau einnig leidd í allan sannleika um að mjólkin kemur úr Búkollu, Huppu og Skjöldu en ekki bara úr kælinum í matvöruversluninni. Við getum jú ekki ætlast til þess að komandi kynslóðir standi vörð um íslenskan landbúnað ef við gefum þeim aldrei tækifæri til að kynnast honum. Því framtíð íslensks landbúnaðar byrjar ekki aðeins í fjósunum hjá okkur, úti á túni eða í samtali við stjórnvöld. Hún byrjar líka í hugum þeirra barna sem fá tækifæri til að kynnast landbúnaði. Með því að opna búið ykkar eins og þið gerið hafið þið sýnt að samfélagsleg ábyrgð okkar bænda nær langt út fyrir okkar daglegu störf í fjósinu og langt út fyrir túnfótinn. Það er ekki sjálfgefið að taka að sér slíkt verkefni samhliða annasömum búrekstri. Það krefst tíma, skipulags, elju og umfram allt einlægs áhuga á að láta gott af sér leiða. Fyrir það eigið þið miklar þakkir skildar.  

Einnig eigið þið sérstakar þakkir skildar fyrir framlag ykkar til Alþjóðlega mjólkurdagsins í ár, en óhætt er að halda því fram að dagurinn hefur aldrei vakið jafn mikla eftirtekt. Alls var horft á myndbönd Hjálmars Arnars samfélagsmiðlastjörnu og Vals starfsmanns Bændasamtakanna -  sem tekin voru upp í fjósinu á Miðdal rúmlega 400 þúsund sinnum – sem samsvarar um það bil fjölda allra Íslendinga - Yfir 7.000 manns brást við þeim og var þeim deilt tæplega 800 sinnum. Það er alls ekki sjálfsagt að vilja opna fjósið fyrir öllum landsmönnum á þennan hátt. Þúsund þakkir til ykkar.    

Ábúendur í Miðdal eru samhliða bússtörfum og gestrisni sinni, einnig virk í félagsmálum bænda, Ólöf Ósk situr í fagráði í nautgriparækt, hefur setið deildarfundi nautgripabænda og Búnaðarþing Bændasamtakanna undanfarin ár og kemur auk þess að uppfræðslu verðandi bænda á Íslandi í störfum sínum hér við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri. Það er því í mörg horn að líta í Miðdal en auk bússtarfa og annarra starfa þarf að sinna uppeldi barnanna og því ekki annað hægt en að dáðst þeirri elju, dugnaði og áræði sem þetta unga fólk sýnir.  

Búið í Miðdal er sómi sinnar sveitar þar sem þátttaka í félagsmálum, kynningarstarfi og ræktunarstarfi er virk og ábúendur hafa áunnið sér traust og virðingu sveitunga sem og kollega sinna með alúðlegri og hófstilltri framkomu í hvívetna. Slíkt er ekki sjálfgefið, menn þurfa að ávinna sér traust og virðingu með framgangi og verkum. Það hafa ábúendur í Miðdal gert og það er því nautgripabændum sannur heiður að veita þeim viðurkenningu sem Fyrirmyndarbú Nautgripabænda Bændasamtaka Íslands. Í því felst að búið sé svo sannarlega til fyrirmyndar og það á að sönnu við um búið Miðdal í Kjós. 

Á myndinni má sjá Guðmund, Svanborgu, Ólöfu Ósk og Hafþór, ásamt börnum Ólafar Óskar og Hafþórs. Mynd tekin af James Einari Becker.

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Ásgeir Hrafn Símonarson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1240