Fulltrúaráð Auðhumlu svf. 2026
Allar 14 deildir Auðhumlu svf. hafa nú í marsmánuði haldið aðalfundi sína þar sem félagsmenn hverrar deildar fyrir sig hafa kosið sinn/sína fulltrúa í fulltrúaráð Auðhumlu svf. fyrir árið 2026.
Á aðalfundi deildanna er fyrst kjörinn deildarstjóri til eins árs í senn. Deildarstjórinn verður sjálfkrafa einn af fulltrúum deildarinnar í fulltrúaráðinu. Að því loknu eru kosnir aðrir aðalfulltrúar deildarinnar, en kjósa skal einn fulltrúa til eins árs í senn fyrir hver 12 virk innleggsnúmer deildarinnar og brot af þeirri tölu, þannig að ef innleggsnúmer deildarinnar eru 12 eða færri skal fulltrúinn vera einn (þ.e. deildarstjórinn, sbr. það sem að framan sagði), tveir ef innleggsnúmerin eru 13-24 o.s.frv. Varafulltrúar hverrar deildar fyrir sig skulu vera jafnmargir aðalfulltrúum og eru þeir kallaðir til ef þarf í þeirri röð sem atkvæðafjöldi hvers og eins segir til um. Fyrsti varafulltrúi er þannig sá félagsmaður sem hlaut flest atkvæði sem varafulltrúi, annar varafulltrúi sá sem hlaut næst flest atkvæði o.s.frv.
Talning virkra innleggsnúmera skal miðuð við 31. desember næsta árs fyrir aðalfundi deildanna.
Fulltrúar allra félagsdeildanna mynda fulltrúaráðið og þeir einir fara með atkvæði á fulltrúaráðsfundum. Fulltrúaráðið er þannig æðsta vald Auðhumlu svf. þar sem það kýs stjórn félagsins og varamenn í stjórn, svo og skoðunarmenn og varamenn þeirra, ásamt endurskoðanda.
Auðhumla
Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.
Lesa meiraGæðaráðgjafar
Hans Egilsson: Sími 861-4775
Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772
Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397
Ásgeir Hrafn Símonarson: Sími 836 4770
RM rannsókn: Sími 450-1240

