Dreifing mjólkurvara með mjólkurbílum hættir um áramót
Stjórn Auðhumlu svf. hefur ákveðið að dreifingu mjólkurvara með mjólkurbílum MS til mjólkurframleiðenda skuli hætt frá áramótum 2026/2027.
Ástæður þessarar ákvörðunar eru eftirfarandi:
- Ekki er hægt að tryggja órofna kælingu mjólkurvara þegar þær eru sendar með mjólkurbíl og það getur haft áhrif á geymsluþol þeirra. MS er óheimilt að stunda vörudreifingu mjólkurvara með bílum sem ekki hafa geymslukassa með kælibúnaði.
- Nýta þarf pláss og burðargetu mjólkurbíla og dráttarvagna til hins ítrasta fyrir mjólkina sjálfa sem sótt er til bænda.
- Samfélagið hefur breyst, samgöngur auðveldari og kaupstaðaferðir bænda til að afla sér daglegra nauðsynja ekki lengur neitt tiltökumál víðast hvar.
- Ekki er hægt að tryggja jafnræði þjónustunnar til allra mjólkurframleiðenda þar sem aðstæður MS til að taka saman pantanir og geyma í mjólkurbílamóttöku eru mjög misjafnar eftir afurðastöðvum.
- Matvöruverslanir eru farnar að gera út sérstaka bíla sumstaðar til að keyra vörur út um sveitir landsins. Dreifing dagvöru með mjólkurbílum í samkeppni við þá gæti orkað tvímælis.
Allar upplýsingar um almenna vörudreifingu Mjólkursamsölunnar má nálgast á heimasíðu félagsins á slóðinni: https://www.ms.is/pantanir-og-dreifing
Auðhumla
Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.
Lesa meiraGæðaráðgjafar
Hans Egilsson: Sími 861-4775
Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772
Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397
Ásgeir Hrafn Símonarson: Sími 836 4770
RM rannsókn: Sími 450-1240

