7. október 2026

Dagur landbúnaðarins 2026

Dagur landbúnaðarins 2026 verður haldinn fimmtudaginn 8. október með málþingi í Sjálfstæðissalnum, Iceland Parliament Hotel á milli kl. 15 og 17.

Að málþinginu standa Bændasamtök Íslands og SAFL - Samtök fyrirtækja í landbúnaði.

Yfirskrift málþingsins er "Landbúnaður í heimi breytinga - öryggi, verðmætasköpun og framtíðartækifæri"

Sjá nánar hér

Dagur landbúnaðarins er haldinn í aðdraganda Landbúnaðarsýningarinnar í Laugardagshöllinni sem stendur yfir dagana 9. - 11. október 2026. Á sýningunni fá gestir tækifæri til að kynnast fjölbreyttum þáttum landbúnaðar ásamt nýjungum í tækni, búnaði og ýmsum rekstrarvörum sem tengjast landbúnaði.

Markmið sýningarinnar er að varpa ljósi á fjölbreytni landbúnaðar á Íslandi og leggja áherslu á hreinleika íslenskrar matvælaframleiðslu.

Við sjáumst þar!

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Ásgeir Hrafn Símonarson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1240