Breyting á efnainnihaldi viðmiðunarmjólkur frá 01.01.2026
Samsetning viðmiðunarmjólkur (grundvallarmjólkur) breytist frá 1. janúar 2026 og verður eftirfarandi (með fyrirvara um staðfestingu Verðlagsnefndar búvöru):
Fita: 4,21% (var 4,23%)
Prótein: 3,37% (var 3,38%)
Bæði fitu- og próteinprósenta viðmiðunarmjólkur lækkar sem sagt á milli ára.
Við útreikninga á efnainnihaldi viðmiðunarmjólkur, öðru nafni grundvallarmjólkur, er miðað við meðalefnainnihald síðustu þriggja ára, nú árin 2023, 2024 og 2025.
Vægi efnaþáttana í grundvallarverði mjólkur verður óbreytt, þ.e. hvor efnaþáttur vegur 50% af afurðastöðvarverði.
Gildandi lágmarksverð sem Verðlagsnefnd búvöru ákveður (gildir frá 17.nóvember 2025) er 141,39 kr/l. miðað við 1. flokks viðmiðunarmjólk.
Frá og með 1. janúar 2026 er verð á hverja fitu- og próteineiningu eftirfarandi:
| Efnisþáttur | Verð á efnaþátt | Verð á fitu- og próteineiningu |
| Fita | 70,695 kr. | 16,7922 kr/fitueiningu |
| Prótein | 70,695 kr. | 20,9777 kr/próteineiningu |
Útreikningur á verði til framleiðenda pr. lítra mjólkur er gerður með eftirfarandi hætti:
(16,7922 *F%) + (20,9777 * P%) = kr. á lítra mjólk
Dæmi:
Mjólkurframleiðandi leggur inn í afurðastöð hrámjólk með 4,45% fitu og 3,34% prótein.
Viðkomandi mjólkurframleiðandi fær þá greitt fyrir þessa mjólk (16,7922 * 4,45) + (20,9777 * 3,34) = 144,79 kr/l. sem er þá 3,40 kr. hærra verð á hvern lítra en viðmiðunarmjólkin er. Ástæðan er að efnainnihald fitunnar hjá viðkomandi bónda er talsvert meira en viðmiðunarmjólkin er. Próteininnihald mjólkurinnar í þessu dæmi er þó undir viðmiðunarmjólkinni sem lækkar verð hennar lítillega á móti.
Auðhumla
Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.
Lesa meiraGæðaráðgjafar
Hans Egilsson: Sími 861-4775
Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772
Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397
Ásgeir Símonarson: Sími 836 4770
RM rannsókn: Sími 450-1242

