Aðalfundur Auðhumlu svf. 2026
Aðalfundur Auðhumlu svf. verður haldinn miðvikudaginn 29. apríl 2026 að Bitruhálsi 1 í Reykjavík (Höfuðstöðvar MS).
Á aðalfundinn verða boðaðir þeir 40 fulltrúar sem nýlega hlutu kjör í öllum 14 deildum Auðhumlu svf. Jafnframt verða boðuð á fundinn stjórn og varastjórn félagsins auk boðsgesta en fundurinn er opinn hinum almenna félagsmanni sem hefur þar málfrelsi og tillögurétt skv. 14. grein samþykkta Auðhumlu svf.
Fulltrúaráðsfundir hafa æðsta vald í málefnum félagsins og á aðalfundi er m.a. kosið til stjórnar félagsins á hverju ári skv. 8. grein samþykkta Auðhumlu svf.
Stjórn Auðhumlu svf. hefur ákveðið að í fundarboði verði þeim aðilum sem hafa áhuga á að bjóða sig fram til stjórnar félagsins gefinn kostur á að tilkynna framboð sitt.
Samkvæmt 5. mgr. 4. gr. samþykkta Auðhumlu svf. eru þeir einstaklingar sem skráðir eru í félagatal Auðhumlu svf. kjörgengir í stjórn félagsins og fulltrúaráð. Í þeim tilfellum þar sem lögaðilar eru félagsaðilar að Auðhumlu svf. eru eigendur lögaðilans, félagsmenn, framkvæmdastjórar og aðal- eða varastjórnarmenn lögaðilans kjörgengir í stjórn – enda starfi þeir að verulegu leyti við framleiðsluna.
Samkvæmt 14. grein samþykktanna skulu fulltrúar boðaðir skriflega (tölvupóstur) til aðalfundarins með dagskrá með minnst 7 daga fyrirvara sem þýðir að fundarboðið þarf að fara út eigi síðar en 22. apríl n.k.
Áhugasamir um framboð til stjórnar eru því beðnir um senda tölvupóst á netfangið jhs@audhumla.is - eigi síðar en 21. apríl n.k. - ef vilji er til að tilkynna framboð til stjórnar félagsins í fundarboðinu.
Á það skal þó bent að tilkynning um framboð í fundarboði er valkvætt og er félagsmönnum heimilt er að bjóða sig fram til stjórnar hvenær sem er fram að aðalfundi og jafnframt á fundinum sjálfum áður en kosningar fara fram.
Sjá nánar:
Auðhumla
Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.
Lesa meiraGæðaráðgjafar
Hans Egilsson: Sími 861-4775
Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772
Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397
Ásgeir Hrafn Símonarson: Sími 836 4770
RM rannsókn: Sími 450-1240

