Gerlar í mjólk og forvarnir

Mjólk úr heilbrigðu júgri er gerlasnauð. Umhverfið, umhirðan og hreinlætið eru því lykilatriði við mjólkurframleiðsluna
Gerlarnir berast í mjólkina við mjaltir og af þeim snertiflötum mjaltabúnaðarins og tækjum sem mjólkin fer um og er geymd í og eru ekki hreinir.

Kuldakærir gerlar eru gerlar sem þrífast best við hitastig undir 20°C og fjölga sér niður að 0°C. Þeir finnast í yfirborðsvatni og öðru umhverfi og geta verið í mjaltabúnaði, leiðslum og tönkum. Mikilvægt er að vatnsleyfar berist ekki í mjólkina. Kuldakærir gerlar framleiða efni sem valda ýmsum skemmdum á mjólk, m.a. niðurbroti á fitu og próteini. Þeir framleiða efni sem valda efnahvörfum. Sum þessara efna eru hitaþolin og komast í gegnum gerilsneyðingu þó svo að gerlarnir sjálfir eyðist. Miðað við eðlilegan þvott er gerilsneyðingin með efnum eða heitu vatni mikilvægasti þátturinn í eyðingu þeirra. Einnig er mikilvægt að fylgjast með gæðum neysluvatns og að vatn sitji ekki í leiðslum og tönkum.

Hitaþolnir gerlar þrífast best við 45-60°C og fjölga sér við hitastig allt upp í 90°C. Flestir koma þeir úr heyi, súrheyi og moði. Þeir berast m.a. í gegnum meltingarveg kúnna í básinn, á spena og á húð. Oft er mjög mikið magn í mykju og á húð. Þrif á júgri, spenum og afturhluta kúnna ásamt hreinum básum minnka líkurnar á því að þessir gerlar berist í mjólkina. Slitin spenagúmmí og óþarfa loftsog auka líkurnar á fjölgun gerlanna í mjólkinni. Mikið magn af þessum gerlum drepst ekki við gerilsneyðingu í samlagi og bein tengsl eru á milli innihalds hitaþolinna gerla og geymsluþols mjólkurinnar. Þeir hitaþolnu gerlar, sem valda mestu tjóni í ostagerð, eru þeir sem fjölga sér best án súrefnis. Illa verkað vothey er mikil uppspretta hitaþolinna gerla.

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1242