31. júlí 2020

Upplýsingar og tilmæli til mjólkurframleiðenda vegna COVID-19

Í ljósi aðstæðna í samfélaginu vegna Kórónaveirunnar / COVID-19 eru mjólkurbílstjórar nú með einnota hanska og spritt meðferðis í mjólkurbílunum. Framleiðendur eru vinsamlega beðnir um að hafa einhver ílát eða poka utan við mjólkurhúsin þar sem mjólkurbílstjórar geta losað sig við hanskana að notkun lokinni.

Ef ekki er ílát til staðar utandyra mun bílstjórinn skilja útihurð mjólkurhúss eftir opna, til að komast hjá snertingu er hann gengur út. Það er brýnt og okkur öllum til góðs að ílát séu til staðar eins og óskað er eftir utandyra og biðjum við ykkur öll um gott samstarf til að þetta geti gengið sem best fyrir sig.


Með þessu móti væri slitið á smitleiðir. Ef smit er fyrir á bænum verður það ekki borið lengra.


Við biðjum ykkur því að koma upp íláti eða poka (og tryggja að það fjúki ekki) utan við dyr að mjólkurhúsinu.


Við hlustum á allar ábendingar um það sem betur má fara í þessum aðstæðum og þökkum fram komnar ábendingar.

Eins eru framleiðendur beðnir um að forðast samskipti við mjólkurbílstjóra eins og kostur er.

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1242