Starfsemi
Hlutverk Auðhumlu er að vera sameiginlegur vettvangur mjólkurbænda á starfssvæði félagsins og skila þeim ávinningi bæði varðandi afrakstur af mjólkurframleiðslu sinni og ávöxtun fjármuna sem bundnir eru í félaginu.
Þetta þýðir þríþætta meginstarfsemi:
Félagsstarfsemi sem miðar að því að vera sameiginlegur vettvangur mjólkurbænda á starfssvæðinu og skapa þeim hag af innbyrðis samstarfi.
Rekstur sem hefur það markmið að hámarka skilaverð og veltu með öflugu markaðs- og þróunarstarfi og skilvirkum rekstri dótturfélaga en Auðhumla er m.a. 92,5% eigandi að Mjólkursamsölunni sem er rekstrarfélag mjólkuriðnaðarins á Íslandi.
Ávöxtun og nýsköpun tryggir ávöxtun stofnsjóðs og auk virkrar fjárfestingarstýringar með mismunandi áhættustigi til að auka arðsemi og dreifa áhættu til framtíðar.
Tölfræði og upplýsingar
Hér getur að líta ýmsa tölfræði og annan fróðleik um íslenska mjólkurframleiðslu og mjólkuriðnað s.s. innvigtun og sölu á mjólkurafurðum. Greinagóðar upplýsingar um mjólkuriðnaðinn í tölum. Líttu á.
Lesa meiraFræðsla og greinaskrif
Fróðlegar og gagnlegar greinar tengdar mjólkuriðnaðinu eins og mjaltatæki, mjólkurtanka, forkælingu mjólkur, gæði, hreinlæti og margt fleira. Líttu á og lærðu meira.
Lesa meira