Fulltrúaráð
Fulltrúaráð er kosið þannig að á aðalfundi hverrar deildar Auðhumlu skulu fyrst kjörnir deildar- og varadeildarstjóri til eins árs í senn. Deildarstjórinn verður sjálfkrafa einn af fulltrúum deildarinnar í fulltrúaráðinu. Kjósa skal einn fulltrúa til eins árs í senn fyrir hver 12 innleggsnúmer deildarinnar og brot af þeirri tölu, þannig að ef innleggsnúmer deildarinnar eru 12 eða færri skal fulltrúinn vera einn (þ.e. deildarstjórinn, sbr. það sem að framan sagði), tveir ef innleggsnúmerin eru 13-24 o.s.frv. Talning virkra innleggsnúmera skal miðuð við 31. desember næsta árs fyrir aðalfundi deildanna.
Fulltrúar allra félagsdeildanna mynda fulltrúaráðið og þeir einir fara með atkvæði á fulltrúaráðsfundum. Fulltrúaráðið kýs stjórn félagsins og varamenn í stjórn, svo og skoðunarmenn og varamenn þeirra, ásamt endurskoðanda.
Tölfræði og upplýsingar
Hér getur að líta ýmsa tölfræði og annan fróðleik um íslenska mjólkurframleiðslu og mjólkuriðnað s.s. innvigtun og sölu á mjólkurafurðum. Greinagóðar upplýsingar um mjólkuriðnaðinn í tölum. Líttu á.
Lesa meiraFræðsla og greinaskrif
Fróðlegar og gagnlegar greinar tengdar mjólkuriðnaðinu eins og mjaltatæki, mjólkurtanka, forkælingu mjólkur, gæði, hreinlæti og margt fleira. Líttu á og lærðu meira.
Lesa meira