26. febrúar 2016

Nýjar reglur um lágmarksmjólk taka gildi frá 1. maí 2016

Tæknin er stöðugt að breytast og nú eru flestir mjólkursöfnunarbílar búnir nýjum afkastamiklum dælum með sjálfvirkum sýnatökubúnaði. Til þess að þessi búnaður vinni eins og til er ætlast og svo unnt verði að taka hann í notkun, þarf lágmarks innvigtun frá framleiðanda að vera 200 ltr. Jafnframt eru nú komnir nokkrir mjólkurkælitankar þar sem ekki verður viðkomið sýnatöku með eldri aðferðum. Því er nauðsyn á því að hækka lágmarksmörk sem sótt eru. Rétt þykir þó að veita aðlögun að þessari breytingu. Breyting þessi tekur  gildi frá og með 1. maí 2016.

  
Lágmark mjólkurinnleggs sem sótt er.
 

Mjólk er sótt samkvæmt fyrirfram skipulögðu söfnunarfyrirkomulagi.

Stjórn Auðhumlu svf. hefur ákveðið að mörk lágmarksmjólkur sem sótt er, skuli vera 200 ltr. eftir tvo daga og 300 ltr. eftir þrjá daga.

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1242