12. apríl 2012

Breytt fyrirkomulag á útsendingu niðurstaðna fyrir tanka- og kýrsýni.

Selfossi 13. apríl 2012.
Breytt fyrirkomulag á útsendingu niðurstaðna fyrir tanka- og kýrsýni.
Meginþorri mjólkurframleiðenda notar tölvur og tölvusamskipti  í daglegum störfum sínum og ljóst er að tölvuvæðing mun aukast frekar en hitt.
Rannsóknarstofa mjólkuriðnaðarins (RM) er um þessar mundir að taka í notkun nýjan tölvubúnað og við það tækifæri hafa verið ákveðnar eftirfarandi breytingar til að minnka útsendingu á pappír og með það að markmiði að mjólkurframleiðendur fái sem fyrst niðurstöður mælinga:
1.       Kýrsýnaniðurstöður: Verða hér eftir sendar beint á tölvupóstfang viðkomandi framleiðanda úr tölvukerfi RM Í Excel formi. Fyrir þá sem ekki eru með Excel forrit uppsett á sinni tölvu, fylgir hlekkur með skeytinu, þar sem unnt er að hlaða niður Excel forriti til að skoða niðurstöðurnar. Þeir sem ekki eru með tölvunetföng munu fá sendar niðurstöður á pappír með mjólkurbílum.
2.       Tanksýnaniðurstöður:  Verða hér eftir sendar beint á tölvupóstfang viðkomandi framleiðanda úr afurðakerfi Auðhumlu. Þeir sem ekki eru með tölvunetföng munu fá sendar niðurstöður á pappír með mjólkurbílum.
3.       Bændavefur: Mín síða er nú til fyrir alla framleiðendur sem leggja inn hjá Auðhumlu á heimsíðunni  www.audhumla.is og eru framleiðendur hvattir til að notfæra sér þetta verkfæri sem sýnir fjölþættar upplýsingar um mjólkurinnlegg hvers framleiðanda, gæðaniðurstöður, verðmæti og fleira. Lykilorð eru tilgreind á hverjum afreikningi þannig að þau séu sem aðgengilegust. Í vinstra horni neðst á heimasíðu Auðhumlu er hnappurinn Bændavefur:  og með því að smella á hann er hægt að skrá sig inn.
 
Þeir framleiðendur sem fá niðurstöður á pappír en eru með netföng eru beðnir að senda upplýsingar um netföng sín til Garðars Eiríkssonar, verkefnastjóra hjá Auðhumlu á gardare@audhumla.is.   Beinn sími er 480-1606. Allar breytingar á netföngum má einnig senda á sama netfang.
Með ósk um gott samstarf,
Garðar Eiríksson, verkefnastjóri

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1242