2. júlí 2010

Verð á umframmjólk frá 1. júlí 2010

Stjórn Auðhumlu svf. hefur ákveðið að verð á umframmjólk greiðslumarkstímabilið 2009 -2010 verði sem hér segir frá 1. júlí 2010:

Greitt verði fyrir umframmjólk (mjólk umfram greiðslumark), sem er ígildi 1,5% af 16 mánaða greiðslumarki hvers og eins kr. 40,- á lítra. Allir greiðslumarkshafar hafa hlutfallslega sama rétt til að framleiða þessa mjólk.
Greitt verði fyrir umframmjólk umfram þessi 1,5%, ígildi markaðstekna á alþjóðamarkaði að frádregnum vinnslukostnaði. Upphæð fyrir þennan hluta umframmjólkur verður 30,- kr. á lítra. 
Verðákvörðun þessi gildir til loka ársins.

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1242