12. apríl 2010

Fréttir af aðalfundi 2010

Aðalfundur Auðhumlu var haldinn á Hótel KEA föstudaginn 9. apríl 2010. Á fundinn mættu allir 60 fulltrúar eða varamenn sem boðaðir voru til fundarins ásamt stjórn, forstjóra og starfsmönnum. Einnig mættu nokkrir gestir til fundarins. Kynntar voru skýrslur um rekstur Auðhumlu samstæðunnar árið 2009. Margir tóku til máls. Ný stjórn var kjörin en hana skipa, Egill Sigurðsson, Berustöðum, Erlingur Teitsson, Brún, Guðrún Sigurjónsdóttir, Glitstöðum, Birna Þorsteinsdóttir, Reykjum, Jóhannes Torfason, Torfalæk, Jóhannes Ævar Jónsson, Espihóli og Arnar Bjarni Eiríksson, Gunnbjarnarholti. Varamenn eru; Pétur Diðriksson, Helgavatni, Björn Harðarsson, Holti og Stefán Magnússon, Fagraskógi.

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1242