11. mars 2010

Verð á umframmjólk frá 1. mars 2010

Stjórn Auðhumlu svf. hefur ákveðið að verð á umframmjólk greiðslumarks-tímabilið 2009 -2010 verði sem hér segir og gildi frá 1. mars 2010:
Greitt verði fyrir umframmjólk (mjólk umfram greiðslumark), sem er ígildi 1,5% af 16 mánaða greiðslumarki hvers og eins kr. 35,- á lítra. Allir greiðslumarkshafar hafa hlutfallslega sama rétt til að framleiða þessa mjólk.
Greitt verði fyrir umframmjólk umfram þessi 1,5%, ígildi markaðstekna á alþjóðamarkaði að frádregnum vinnslukostnaði. Upphæð fyrir þennan hluta umframmjólkur verður 25,- kr. á lítra. Verðið verður endurskoðað ársfjórðungslega, fyrst 31. mars 2010 með hliðsjón af markaðstekjum að frádregnum vinnslukostnaði.
Nýtt viðmiðunarverð verður gefið út 1. júlí og síðan ársfjórðungslega eftir það.

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1242