20. nóvember 2008

Innvigtun í viku 45

Innvigtun í viku 46 var 2.218.833 lítrar.  Aukning frá viku 45 var 22.397 lítrar, eða sem nemur 1,02%.  Sé litið til sömu viku á síðasta ári, þá var innvigtun í viku 46 árið 2007 alls 2.184.102 lítrar. 
Vikuleg aukning frá fyrra ári er því 34.731 lítrar og hefur aukningin ekki verið meiri frá miðjum september 2008.
 
Innvigtun það sem af er árinu 2008 er 111,6 milljónir lítra, aukning milli almanaksára er um 843 þúsund lítrar eða 0,8%. 
 
Innvigtun eykst nú milli vikna hjá öllum vinnslustöðvum og lágmarksinnvigtun ársins var í viku númer 43, en þá viku hefur innvigtun einnig verið minnst síðastliðin tvö ár.

Yfirlit yfir vikulega innvigtun má nálgast hér.

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1242