26. mars 2020

Covid-19 upplýsingar til mjólkurframleiðenda varðandi breytingu á sýnatökum o.fl.

Selfossi 26.mars 2020
Ágætu mjólkurframleiðendur

Við sendum ykkur bestu kveðjur og óskir um þið hugið vel að eigin heilsu og öryggi á þessum sérstæðu tímum.

Eins og komið hefur fram hefur víða verið gripið til rótækra aðgerða til að tryggja framleiðsluferla MS og Auðhumlu. Öllum samlögum hefur verið lokað fyrir utanaðkomandi gestum og starfseminni skipt upp í hópa til að auka öryggi, auk þess að þeir sem geta unnið heima, gera það.

Þá hefur deildarfundum sem eftir var að halda verið frestað ótímabundið sem og aðalfundi þar til ástandið batnar. Verður upplýst um það síðar þegar aðstæður í þjóðfélaginu leyfa.

Nokkur atriði sem gripið hefur verið til og vert er að vekja athygli á:

  • Ákveðið hefur verið að hætta tímabundið móttöku og mælingu á kýrsýnum, frumusýnum, gerlasýnum, fangsýnum og öðrum sýnum sem starfsmenn MS og Auðhumlu taka ekki sjálfir. Þetta er gert í samráði við aðgerðarhóp BÍ til að girða fyrir smitleiðir. Gildir þessi ráðstöfun meðan þetta ástand varir. Ekki verður tekið við sýnum hvorki í samlögunum né af bílstjórum. Þessi ráðstöfun tekur þegar gildi. Ef upp koma neyðartilfelli þá endilega verið í sambandi við gæðaráðgjafa Auðhumlu. Varðandi tengingu á fjölda kýrsýna við beingreiðslur þá er erindi í ráðuneytinu til úrvinnslu um að gefa undanþágu á fjölda sýna sem þurft hefur að uppfylla.

  • Gæðaráðgjafar eru ekki lengur með starfsaðstöðu í samlögunum. Þeir eru í tölvu- og símasambandi. Símanúmer eru á forsíðu Auðhumlu audhumla.is

  • Heimsóknir gæðaráðgjafa til mjólkurframleiðenda varðandi öflun aukasýna verða takmarkaðar eins og kostur er. Enginn framleiðendi verður heimsóttur nema í ýtrustu neyð og í samráði við viðkomandi.

  • Ef upp koma tilfelli þar sem vafi er um mjólkurgæði, verður alltaf fyrsti kostur að láta mjólkurbílstjóra taka sýni.

  • Hafið samband við gæðaráðgjafa ef eitthvað er óljóst.

  • Mjólkurbílstjórar eru nú með einnota hanska og handspritt meðferðis í mjólkurbílunum. Framleiðendur eru vinsamlegast beðnir um að hafa ílát eða poka utan við mjólkurhús þar sem bílstjórar geta losað sig við hanskana að notkun lokinni. Eins eru framleiðendur beðnir að forðast samskipti við bílstjóra eins og kostur er meðan þetta ástand varir.

  • Leiðbeiningar til matvælaframleiðenda er að finna á https://www.mast.is/is/um-mast/frettir/frettir/koronaveiran-og-framleidsla-graenmetis-og-dyraafurda   

  • Einnig eru góð ráð að finna hjá RML https://www.rml.is/is/starfsemi/frettir/smitvarnir-vegna-covid-19 

Þið ágætu framleiðendur ásamt afurðafélögum ykkar er mikilvægur hlekkur í matvælaöryggi þjóðarinnar og aldrei eins og nú þegar á reynir fyrir alvöru. Vonandi átta stjórnvöld sig á þessari staðreynd og tryggja hag landbúnaðarins betur hér eftir en undanfarin ár og munið að sól hækkar á lofti og þessu ástandi linnir.

Gætum vel að sóttvörnum og höldum áfram að framleiða okkur góðu landbúnaðarvörur.

Þannig komust við í gegnum þetta og horfum fram á betri tíð.

Með góðri kveðju
Garðar Eiríksson framkvæmdastjóri

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1242