27. febrúar 2020

Skipulagsbreytingar - Gæðaeftirlit Auðhumlu

Stjórn Auðhumlu ákvað á fundi sínum þann 26.02.2020 að sameina verkefnin Fyrirmyndarbú og Mjólkureftirlitið undir nafninu Gæðaeftirlit Auðhumlu. Stefnt er að því að einfalda nálgun á því hvernig úttektir verða framkvæmdar m.a. með hliðsjón af hlutverki MAST í veitingu starfsleyfa.


Þetta er gert m.a. vegna þess að þátttaka í verkefninu Fyrirmyndarbú hefur ekki orðið eins og vonir stóðu til í upphafi og rekstur Auðhumlu er viðkvæmur og stendur ekki undir álagsgreiðslum af þessu tagi.


Þetta þýðir þó ekki að slakað sé á gæðakröfum eða eftirliti af hálfu Auðhumlu. Hjá Auðhumlu eru starfandi þrír gæðaráðgjafar sem hafa eftirlit með gæðamálum mjólkur og koma til með að gera úttektir hjá framleiðendum þó það verði með öðrum hætti en var í Fyrirmyndarbúsverkefninu. Sigurður Grétarsson hefur verið ráðinn sviðsstjóri Gæðaeftirlits Auðhumlu, en hann er bændum af góðu kunnur enda með langa starfsreynslu er kemur að mjöltum, mjaltatækni og gæðamálum þeim tengdum.


Þegar að Fyrirmyndarbúsverkefnið fór af stað á sínum tíma var hugmyndin sú, að þetta þyrfti að vera „lifandi plagg“ og ætti að taka mið af aðstæðum á hverjum tíma. Þessar breytingar eru liður í því að þróa verkefnið þannig að það nýtist bændum og afurðastöðvum þeirra sem best í sínu innra gæðaeftirliti.


Samhliða þessum breytingum hefur Jarle Reiesen dýralæknir látið af störfum og er honum þökkuð góð störf í þágu bænda og Auðhumlu.


Í framhaldi af þessari ákvörðun munu greiðslur fyrir Fyrirmyndarbú falla niður frá 1. 5 2020


Farið verður ítarlegar yfir málið á komandi deildarfundum Auðhumlu.

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1242