20. janúar 2017

Lækkun sérstaks innvigtunargjald af umframmjólk frá 1. febrúar

Sérstakt innvigtunargjald lækkar í kr. 20.- frá 1. febrúar 2017.

Stjórn Auðhumlu svf. ákvað á fundi sínum 27. október 2016 að fyrirkomulag á greiðslum fyrir umframmjólk 2017 verði óbreytt frá því sem verið hefur árið2016.

Frá 1. janúar verður áfram greitt fullt verð fyrir alla innlagða mjólk með tilliti til verðefna og gæða en sérstakt innvigtunargjald hækkar í kr. 35.- á hvern lítra mjólkur umfram greiðslumark. Þetta gjald verður endurskoðað mánaðarlega og getur hækkað eða lækkað eftir aðstæðum og því hvernig framleiðsla og sala þróast. Ástæður fyrir sérstöku innivigtunargjaldi eru þær að Auðhumla er að greiða hærra verð til innleggjenda en fæst við sölu þessarar mjólkur.

Í ljósi fyrirliggjandi gagna um þróun innvigtunar og fjölda gripa ákvað stjórn Auðhumlu á fundi sínum 19. janúar að lækka sérstakt innivigtunargjald frá 1. febrúar 2017 í kr. 20.-

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1242