Félagsmenn – réttindi og skyldur
Mjólkurframleiðendur geta orðið félagsaðilar að Auðhumlu leggi þeir að staðaldri inn mjólk í einhverja af afurðastöðvum félagsins. Upphæð aðildargjalds, sem greiðist við inngöngu í félagið, skal ákveðið á aðalfundi ár hvert. Aðildargjaldið rennur í stofnsjóð félagsaðila.
Sá sem óskar eftir því að gerast félagsaðili í Auðhumlu skal snúa sér til stjórnar félagsins með beiðni um aðild. Einstaklingar, þ.m.t. aðilar félagsbúa og þeir sem samskattaðir eru vegna mjólkurframleiðslu, og lögaðilar geta orðið félagsaðilar.
Félagatal skal geymt á skrifstofu félagsins. Eftir að stjórn hefur samþykkt aðildarumsókn skal nafni og heimilisfangi nýs félagsaðila bætt á félagatalið, um leið og þeir gerast félagsaðilar. Þá skal koma fram hvaða deild félagsaðilar tilheyra. Við nöfn þeirra sem hætta að vera félagar, skal skrá dag og ár, er þeir fara úr félaginu.
Framkvæmdastjórar og stjórnarmenn lögaðila, sem eru félagsaðilar, geta óskað skráningar í félagatal, enda starfi þeir að verulegu leyti við framleiðsluna. Þeir skulu aðgreindir frá félagsaðilum í félagatali, með sérstakri merkingu.
Þeir einstaklingar, sem eru á félagatali, eru kjörgengir í stjórn félagsins og fulltrúaráð. Skráning í félagatal felur í sér rétt til setu á deildarfundum og á aðalfundum félagsins með málfrelsi og tillögurétti.
Hver félagsaðili fer þó aðeins með eitt atkvæði á deildarfundum.
Félagsréttindum halda félagsaðilar meðan þeir skipta við félagið með þeim hætti að senda því mjólk, uns lokið er afgreiðslu reiknings þess árs, er viðskiptum var hætt.
Félagsaðili getur sætt brottvikningu úr félaginu:
a) Ef hann verður ber að því að spilla áliti félagsins eða vinna gegn hagsmunum félagsins.
b) Ef hann er félagsmaður að yfirvarpi, en hefur mestöll viðskipti sín annarsstaðar.
c) Ef hann sýnir félaginu ítrekuð vanskil.
Viltu gerast félagsmaður og þar með mjólkurinnleggjandi í Auðhumlu svf?
Umsóknareyðublað vegna aðildar í félaginu (PDF).
Stofngjaldið er 10.000 krónur samkvæmt samþykkt á aðalfundi Auðhumlu svf árið 2007.
Eyðublaðið má senda sem viðhengi til Garðars Eiríkssonar (gardare@audhumla.is) skrifstofu Auðhumlu, Austurvegi 65, 800 Selfossi eða faxa í númerið 480 1610.
