05.02.2010Forstjóraskipti hjá Auðhumlu
Þann 1.febrúar urðu forstjórarskipti hjá Auðhumlu, samvinnufélagi 700 mjólkurbænda. Magnús Ólafsson, forstjóri lét þá af störfum en við tók Einar Sigurðsson, sem eftir þessa breytingu verður forstjóri bæði Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar.
