30.10.2008Upplýsingar um innvegið mjólkurmagn aftur aðgengilegt á vef Auðhumlu svf
Upplýsingar um innvegið mjólkurmagn er aftur orðið aðgengilegt á Bændavefu Auðhumlu.
Því miður tók langan tíma að tengja vefinn við nýja afurðakerfið, sem var tekið í notkun í byrjun september sl. Nú er búið að ganga frá forritun og fleira í sambandi við þetta, og núna er hægt að fara inn á netið og sjá nýjustu tölur, ásamt því að fletta upp eldri gögnum.
Fyrir hönd Auðhumlu svf er beðist afsökunar á þeirri töf sem varð.
Ólafur Steinason
Tölvudeild Mjólkursamsölunnar ehf
