27.10.2008Sveitapósturinn 9. tbl. 2008
Sveitapósturinn 9. tbl. 2008 er kominn út.
Í leiðara fjallar Magnús Ólafsson um verðlagsmál mjólkur og heimsókn forseta Íslands í Mjólkursamsöluna 13. október 2008.
Í bændaviðtali er að þessu sinni Guðný Heiðbjört Jakobsdóttir bóndi á Syðri-Knarrartungu í Breiðuvík á Snæfellsnesi.
Meðal annars efnis er grein Þorsteins Ólafssonar dýralæknis um lífsgæði mjólkurkúa og upplýsingar um framleiðslu og sölu mjólkurafurða.
Hér getur þú nálgast nýjasta Sveitapóstinn og einnig eldri tölublöð.
