22.10.2008Nýtt afurðakerfi hjá Auðhumlu svf
Nýtt afurðakerfi hjá Auðhumlu svf.
Í september var tekið í notkun nýtt afurðakerfi hjá Auðhumlu. Eldra kerfið, þó traust væri, var komið nokkuð vel til ára sinna og að nokkru leyti barn síns tíma.
Enn er verið að aðlaga nýja kerfið og vonumst við til þess að vera búnir að aðlaga útskriftir eilítið betur fyrir næstu mánaðarmót.
Vert er að vekja athylgi framleiðenda á því að á afreikningi er nú afreiknað mjólkurinnlegg og að auki er flutningskostnaður og afdregið í stofnsjóð þar fyrir neðan á sama blaði. Einnig er ný gerð reikningsyfirlita. Með þessu móti fækkar pappírnum frá því sem áður var.
Eins og framleiðendur hafa orðið varir við, hefur bændavefur Auðhumlu ekki getað miðlað nýjum mjólkurinnleggsupplýsingum síðan 12. september sl. Þetta stafar af töfum á forritun í tengslum við hið nýja afurðakerfi. Fastlega er gert ráð fyrir því að vefurinn komist í lag á næstu dögum.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framleiðendur kunna að hafa orðið fyrir af þeim sökum.
Garðar Eiríksson
Skrifstofu- og fjármálastjóri MS
Skrifstofu- og fjármálastjóri MS
