29.09.2008Upplýsingar um innvegið mjólkurmagn óaðgengilegt um tíma á vef Auðhumlu.
Á vef Auðhumlu hefur hver bóndi, í gegn um aðgangsstýrt svæði, getað sótt upplýsingar um hversu mikil mjólk hann hefur afhent til mjólkursamlags. Í gegn um sömu aðgagnsstýringu geta bændur skoðað niðurstöður efna- og gerlamælinga hjá Rannsóknarstofu SAM.
Nú er verið að taka í notkun nýttt mjólkurafurðarkerfi. Vegna breytinganna verða upplýsingar um innvegið mjólkurmagn ekki aðgengilegar á vefnum um einhvern tíma. Áhersla verður lögð á að koma upplýsingum aftur á heimasíðu Auðhumlu svf, eins fljótt og unnt er. Ekki er gert ráð fyrir truflun á upplýsingagjöf frá Rannsóknarstofu SAM vegna breytinganna.
