03.04.2008Opið fjós að Þverholtum í Borgarbyggð, laugardaginn 5. apríl nk. kl. 13:00
Ábúendur á jörðinni að Þverholtum í Borgarbyggð, þau Hilmar Sigurðsson og Þóra Þorgeirsdóttir verða með opið fjós laugardaginn 5. apríl nk. frá kl 13:00.
Í Þverholtum hefur nýlega verið tekið í notkun eitt nýtískulegasta fjós á landinu fyrir um 150 kýr með tveimur Lely mjaltaþjónum.
Fjós og innréttingar eru frá Landstólpa. Mjaltaþjónar, flórgoði og kjarnfóðurbásar eru frá Vélborg.
Góð aðstaða er í fjósinu til að fylgjast með mjöltum.
Allir áhugasamir eru boðnir velkomnir.
