27.03.2008Sveitapósturinn 3. tbl. 2008
Út er komið 3. tölublað Sveitapóstsins á þessu ári.
Þar ræðir Guðbrandur um verðlagsmál landbúnaðarins í ljósi mikilla breytinga sem orðið hafa á aðstæðum greinarinnar og einnig í tengslum við umræðu um mikilvægan þátt í öryggismálum hverrar þjóðar sem er fæðuöryggi til framtíðar. Hann segir einnig fréttir af deildafundum og að aðalfundur Auðhumlu verður haldinn þann 11. apríl nk. í félagsheimilinu að Hlöðum á Hvalfjarðarströnd. Sá fundur er opinn öllum félagsmönnum og þeir hvattir til að mæta.
Bændaviðtalið er við Björn Magnússon bónda að Hólabaki í Þingi. Sagt er frá hreinni framleiðslutækni hjá MS Akureyri og framleiðslu og mjólkursöfnun hjá MS Búðardal.
Einnig er starfsemi Rannsóknarstofu SAM bæði í Reykjavík og á Selfossi kynnt.
Hér getur þú nálgast nýjasta Sveitapóstinn og einnig eintök af eldri tölublöðum.
