Sýnataka

Gæðamálin eru einn mikilvægasti þátturinn við mjólkurframleiðsluna. Hver einasta mjólkursending frá sérhverju býli þarf að standast lágmarksgæðakröfur því ein skemmd sending getur eyðilagt tugi þúsunda lítra af mjólk. Mikilvægt er að mjólkurframleiðandinn haldi vöku sinni og tilkynni til Gæðaeftirlits Auðhumlu ef minnsti grunur er um gallaða eða ónothæfa mjólk eða fargi henni á staðnum. Með fyrirbyggjandi aðgerðum, öguðum vinnubrögðum, reglubundnu eftirliti við mjaltir, kælingu og hreinlæti næst góður árangur.

Reglubundnir mjólkurflutningar eiga einnig að tryggja fullnægjandi meðferð mjólkurinnar.

Bílstjóra ber að tryggja að mjólkursýnin fái viðeigandi meðferð þar til þau koma á áfangastað

Hann skal hafa samband við Gæðaeftirlit Auðhumlu ef eitthvað er óeðlilegt á dælingarstað og er honum óheimilt að taka einhliða ákvarðanir um dælingu eða ráðstöfun mjólkurinnar.
Flutningatæki og búnaður eiga að vera til fyrirmyndar í einu og öllu, hrein og vel þrifin, enda hluti af góðri ímynd mjólkurinnar. Viðeigandi aðstaða fyrir mjólkursýni á að vera í hverjum bíl.

Hér má nálgast kynningarbækling til bænda um sjálvirka sýnatöku á tanksýnum:

Kynningarbæklingur til bænda um sjálfvirka sýnatöku á tanksýnum 

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1242