Sala á mjólkurafurðum
Mjólk og mjólkurvörur skipa mikilvægan fæðuflokk í manneldisstefnu Íslendinga, enda eru þær auðugar af bætiefnum og kalki og eðlilegur hluti daglegrar fæðu fólks á norðlægum slóðum. Um 75% af kalki í fæðu Íslendinga kemur úr mjólkurvörum og hæfileg neysla mjólkur og mjólkurvara hentar flestu fólki alla ævi.
Þessar staðreyndir hafa m.a. leitt til mikillar vöruþróunar í mjólkuriðnaðinum undanfarna áratugi en þróun nýjunga hefur þó verið einstaklega öflug síðasta áratuginn.
Margar tegundir af neyslumjólk gera fólki kleift að velja sér mjólk við hæfi, með tilliti til fituinnihalds og með tilkomu mikillar fjölbreytni í bragðbættum mjólkurdrykkjum hafa neytendur úr enn meiru að velja. Sama þróun hefur átt sér stað hvað varðar ýmsar aðrar unnar mjólkurafurðir, sýrðar og bragðbættar, mjólkurréttir með margs konar eiginleika sem uppfylla mismunandi þarfir. Úrval íslenskra osta eykst stöðugt og eftirspurn neytenda sömuleiðis. Margs konar afbrigði af smjörvörum hafa náð fótfestu og hefðbundið smjör í mismunandi pakkningum nýtur aukinnar hylli. Jafnframt hefur átt sér stað þróun í fjölbreytni umbúða sem gera neyslu auðveldari miðað við kringumstæður neyslu. Niðursneiddir ostar, mjólkurréttir með skeið, mjólkurdrykkir í flöskum eða dósum sem auðvelda neyslu. Í það heila þykja íslenskar mjólkurvörur sérlega vandaðar og framboð og fjölbreytni auðveldar fólki enn frekar að nýta sér ótvíræða hollustu mjólkurinnar á þann hátt sem best hentar hverjum og einum. Mjólkuriðnaðurinn eygir endalausa möguleika á frekari þróun með þetta frábæra hráefni.
Sala mjólkurvara aðildarfélaga SAM, umreiknuð á lítra mjólkur miðað við próteininnihald
| Vöruflokkur | Síðasti ársfjórðungur | Síðustu 12 mánuðir | Breyting frá fyrra ári | |
| 1 ársfjórðungur 2009 | Apríl '08 - Mars '09 | 1 ársfj. | 12 mánuðir | |
| Mjólk | 11.343.880 | 44.425.227 | 7,83 | 5,52 |
| Rjómi | 378.871 | 1.746.326 | -13,78 | -3,50 |
| Jógúrt | 520.865 | 2.366.804 | -10,90 | -20,12 |
| Skyr | 2.825.732 | 11.764.610 | -0,46 | 1,39 |
| Viðbit | 746.272 | 3.073.638 | 3,26 | 1,46 |
| Ostar | 10.883.094 | 46.563.629 | -7,16 | 0,27 |
| Duft | 1.689.154 | 6.328.247 |
-18,84 |
-14,74 |
| Annað | 28.441 | 185.843 | -14,15 | -11,24 |
| Samtals á próteingrunni | 28.416.310 | 116.454.324 | -2,29 | 0,76 |
| Umreiknað á fitugrunn | 26.918.525 | 112.196.673 | -0,37 | 1,63 |
