Lánafyrirgreiðsla
Auðhumla lánar félagsmönnum sínum fjármuni til kaupa á greiðslumarki í mjólk og vegna mjaltabúnaðar, svo sem til kaupa á mjólkurtönkum.
Kvótalán eru í tveimur flokkum:
a) Óverðtryggð lán til allt að 5 ára. Vextir miðast við óverðtryggða vexti Landsbanka Íslands án álags.
b) Verðtryggð lán til allt að 10 ára. Vextir miðast við verðtryggða vexti Landsbanka Íslands og lán eru tryggð með vísitölu neysluverðs.
Tankalán:
Boðið eru upp á lán til tveggja ára fyrir allt að 50% af kaupverði mjólkurtanks. Fyrra árið er vaxtalaust en að öðru leyti miðast vextir við óverðtryggða vexti Landsbanka Íslands án álags.
Önnur lán vegna mjaltabúnaðar eru með vöxtum frá lántökudegi og með sömu vaxtakjörum að öðru leyti.
Tölfræði og upplýsingar
Hér getur að líta ýmsa tölfræði og annan fróðleik um íslenska mjólkurframleiðslu og mjólkuriðnað s.s. innvigtun og sölu á mjólkurafurðum. Greinagóðar upplýsingar um mjólkuriðnaðinn í tölum. Líttu á.
Lesa meiraFræðsla og greinaskrif
Fróðlegar og gagnlegar greinar tengdar mjólkuriðnaðinu eins og mjaltatæki, mjólkurtanka, forkælingu mjólkur, gæði, hreinlæti og margt fleira. Líttu á og lærðu meira.
Lesa meira