Gæðakröfur til hrámjólkur
Samantekt
Samantekt á flokkunarmörkum, verðfellingum og A-greiðalum vegna hjámjólkur frá 1. júlí 2006
Eftirfarandi samantekt er byggð á reglugerð nr. 919/2002 um mjólk og mjólkurvörur, reglugerð nr. 528/2006 um breytingu á reglugerð um mjólk og mjólkurvörur sem gildir frá 1. júlí 2006, reglum verðlagsnefndar búvara nr. 503/2006 um flokkun mjólkur og verðfellingar vegna líftölu, frumutölu og lyfjaleifa sem gilda frá 1. júlí 2006 og samþykkt Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði um greiðslur og flokkun í 1. flokk A fyrir árið 2006.
Líftala örvera
Mæling á líftölu örvera er framkvæmd í hverri viku. Niðurstöður mælinganna eru meðhöndlaðar á tvennan hátt. Annars vegar er reiknað *faldmeðaltal (áður kallað margfeldismeðaltal) reglubundinna mælinga síðustu tveggja mánaða skv. Mjólkurreglugerð þannig að nýtt faldmeðaltal reiknast mánaðarlega. Hins vegar er mjólkin flokkuð mánaðarlega miðað við niðurstöður mælinga hverrar viku skv. reglum verðlagsnefndar búvara.
Sölubann vegna líftölu
Ef faldmeðaltal tveggja mánaða fer yfir 600 þúsund ein/ml sendir mjólkurstöð mjólkurframleiðanda tilkynningu um það. Hann fær frest í þrjá mánuði til að ná faldmeðaltalinu undir mörk aftur ella hættir mjólkurstöð að taka á móti mjólk frá viðkomandi framleiðanda uns faldmeðaltalið er aftur komið undir 600 þúsund. Takist framleiðanda ekki að ná faldmeðaltalinu niður fyrir 600 þúsund á þremur mánuðum getur hann þó sótt um tímabundna undanþágu til héraðsdýralæknis. Ef framleiðandi fær undanþágu má hann selja mjólk til mjólkurstöðvar tímabundið svo fremi sem síðasta reglubundna mæling sé alltaf undir 600 þúsund. Slík undanþága getur þó aldrei varað lengur en 60 daga í senn.
Verðfelling vegna líftölu
Allar verðfellingar reiknast af afurðastöðvarverði. Fyrir hvert sýni, sem flokkast í 2. flokk, er mjólkurmagn mánaðarins verðfellt um 4%, fyrir hvert sýni, sem fer í 3. flokk, er verðfellt um 9% og fyrir hvert sýni, sem fer í 4. flokk, er verðfellt um 15%. Flokkamörk eru eftirfarandi:
1. flokkur =?400.000 einingar/ml
2. flokkur > 400.000 og =?600.000 einingar/ml
3. flokkur > 600.000 og =?3.000.000 einingar/ml
4. flokkur > 3.000.000 einingar/ml
Frumutala
Mæling á frumutölu er framkvæmd í hverri viku. Niðurstöður mælinganna eru meðhöndlaðar á tvennan hátt. Annars vegar er reiknað faldmeðaltal reglubundinna mælinga síðustu þriggja mánaða skv. mjólkurreglugerð þannig að nýtt faldmeðaltal reiknast mánaðarlega. Hins vegar er mjólkin flokkuð mánaðarlega miðað við faldmeðaltal mælinga mánaðarins.
Sölubann vegna frumutölu
Ef þriggja mánaða faldmeðaltal fer yfir 400 þúsund frumur/ml sendir mjólkurstöð mjólkurframleiðanda tilkynningu um það. Hann fær frest í þrjá mánuði til að ná faldmeðaltalinu undir mörk aftur ella hættir mjólkurstöð að taka á móti mjólk frá viðkomandi framleiðanda uns faldmeðaltalið er aftur komið undir 400 þúsund. Takist framleiðanda ekki að ná faldmeðaltalinu niður fyrir 400 þúsund á þremur mánuðum getur hann þó sótt um tímabundna undanþágu til héraðsdýralæknis. Ef framleiðandi fær undanþágu má hann selja mjólk til mjólkurstöðvar tímabundið svo fremi sem síðasta reglubundna mæling sé alltaf undir 400 þúsund. Slík undanþága getur þó aldrei varað lengur en 60 daga í senn.
Verðfelling vegna frumutölu
Allar verðfellingar reiknast af afurðastöðvarverði. Verðfelling miðast við faldmeðaltal mánaðar og nú er verðfellt strax eftir fyrsta mánuð sem reiknast yfir mörkum 1. flokks. Þá er verðfellt um 5% vegna 2. flokks og 18% vegna 3. flokks. Ef mjólk flokkast í 3. flokk þrjá mánuði í röð verðfellist mjólkurmagn síðasta mánaðar um 36%. Ef mjólk flokkast í 3. flokk fjóra mánuði í röð eða fleiri verðfellist mjólkurmagn síðasta mánaðar um 54%. Athygli er vakin á því að flokkamörk vegna 3. flokks hafa verið lækkuð niður í 500. Flokkamörk eru eftirfarandi:
1. flokkur =?400.000 frumur/ml
2. flokkur > 400.000 og =?500.000 frumur/ml
3. flokkur =?500.000 frumur/ml
Lyfjaleifar
Öll mjólk er rannsökuð með tilliti til efna- og lyfjaleifa (sýklalyf, sýklaeyðandi og sýklaheftandi efni). Að minnsta kosti einu sinni í mánuði eru sýni frá hverjum framleiðanda rannsökuð með tilliti til efna- og lyfjaleifa.
Mjólk má ekki innihalda lyfjaleifar í meira magni en sem segir til um í reglugerð nr. 653/2001 um hámark dýralyfjaleifa í sláturafurðum, eggjum og mjólk, með síðari breytingum. Ef framangreind efni finnast í mjólk, sem send hefur verið til mjólkurstöðvar, er mjólkurframleiðanda og viðkomandi héraðsdýralækni tilkynnt það þegar í stað af mjólkurstöð. Slíkri mjólk er fargað í samráði við eftirlitsaðila, hún er ekki skráð inn í mjólkurstöð og verðfelld um 15% af afurðastöðvarverði. Ef um fleiri en eitt tilfelli með lyfjaleifum er að ræða innan sama mánaðar verðskerðist innlegg mánaðarins um 15% fyrir hvert tilfelli. Mjólkurstöð tekur ekki á móti mjólk frá viðkomandi framleiðanda fyrr en hann hefur sýnt fram á að hún innihaldi ekki framangreindar leifar.
Viðmiðanir við eftirlit mjólkur
Viðmiðanir sem notaðar eru til aðstoðar við eftirlit með mjólkurgæðum en ekki til verðfellingar
Hitaþolin líftala
Mörk fyrir 1. flokk eru upp að 5.000.
Kuldaþolin líftala
Mörk fyrir 1. flokk eru upp að 25.000.
Dvalargró loftfælinna baktería
Ef enginn vöxtur kemur eftir 72 klst. telst mjólkin fyrsta flokks.
Skynmat
Ef ekkert sýni hefur lyktar- eða bragðgalla telst mjólkin fyrsta flokks.
1. flokkur A
Framleiðandi fær greitt aukalega 1,00 kr/lítra innlagðrar mjólkur í mánuðinum ef hún stenst allar kröfur um 1. flokk, auk þess sem faldmeðaltal frumutölu í mánuðinum er 220 þúsund frumur/ml eða lægra og líftala örvera með Bactoscan aðferð hefur ekki farið upp fyrir 40.000 ein/ml.
Samantekt
Flokkunarmörk, verðfellingar og A-greiðslur vegna hrámjólkur eru skv. eftirfarandi töflu frá 1. janúar 2007: (Excel skjal)
- Um Auðhumlu
- Félagsmenn
- Deildafundir 2010
- Fræðsla og greinaskrif
- Fréttir
- Tilkynningar
- Þjónustuveita bænda
- Gæðamál
- Verðlagsmál
- Lánafyrirgreiðsla
- Gæðakröfur til hrámjólkur
- Greiðslur til framleiðanda
- Þjónusta við mjólkurframleiðendur
- Símaskrá
- Reglugerðir
- Leiðbeiningar og kynningar
- Bændavefur
- Sveitapósturinn
- Tölfræði og upplýsingar
- Tenglar
- Samsala í 70 ár
Tölfræði og upplýsingar
Hér getur að líta ýmsa tölfræði og annan fróðleik um íslenska mjólkurframleiðslu og mjólkuriðnað s.s. innvigtun og sölu á mjólkurafurðum. Greinagóðar upplýsingar um mjólkuriðnaðinn í tölum. Líttu á.
Lesa meiraFræðsla og greinaskrif
Fróðlegar og gagnlegar greinar tengdar mjólkuriðnaðinu eins og mjaltatæki, mjólkurtanka, forkælingu mjólkur, gæði, hreinlæti og margt fleira. Líttu á og lærðu meira.
Lesa meira