Mjólkureftirlit SAM
Góð mjólkurgæði eru sameiginlegt hagsmunamál mjólkurframleiðenda og mjólkurstöðva. Því er mikilvægt að mjólkurstöðvarnar komi að gæðamálum mjólkurframleiðenda og leiðbeini þeim eftir bestu getu með starfrækslu mjólkureftirlits. Frá og með 1. maí 2007 heyrir mjólkureftirlitið undir Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði. Mjólkureftirlit SAM er hluti af gæðakerfi mjólkurstöðvanna og mjólkurframleiðenda. Þannig vinnur mjólkureftirlitið með fyrirbyggjandi aðgerðum að því að koma í veg fyrir að upp komi vandamál með gæði mjólkur hjá framleiðanda eða að öðrum kosti vinnur það að því að leysa gæðavandamálin eins fljótt og unnt er.
Markmið með mjólkureftirliti
Markmiðið með mjólkureftirliti er að stuðla að því að mjólk frá mjólkurframleiðendum sé af sem bestum gæðum með því að leiðbeina þeim við framleiðsluna varðandi mjaltir, mjaltabúnað, aðbúnað við mjaltir og í mjólkurhúsi, umhverfi og meðferð mjólkurinnar.
Starfsmenn
Við mjólkureftirlit vinna þrír starfsmenn. Þeir starfa náið saman og fara milli svæða ef nauðsyn krefur.
Kristján Gunnarsson sinnir aðallega svæðum MS Akureyri og MS Egilsstöðum.
Sími: 460 9620 og gsm: 892 0397
Gunnar Kjartansson sinnir aðallega svæði MS Selfossi.
Sími: 480 1620 og gsm: 861 4772
Hans Egilsson sinnir svæðum MS Reykjavík, Búðardal, Ísafirði og Blönduósi, auk Skagafjarðar.
Gsm: 861 4775
Aðstoð við úrlausn vandamála
Ef mjólk frá mjólkurframleiðanda stenst ekki þær gæðakröfur sem til hennar eru gerðar heimsækir starfsmaður mjólkureftirlitsins viðkomandi mjólkurframleiðanda og greinir hvers vegna. Til þess hefur hann ýmis mælitæki auk þess sem hann metur aðstæður hjá mjólkurframleiðanda eftir eigin skyni. Ef ástæða þykir er tekin aukaprufa til greiningar. Ef vandamálið liggur í mjöltum, mjaltabúnaði, kælibúnaði, aðbúnaði við mjaltir og/eða í mjólkurhúsi, umhverfi eða meðferð mjólkurinnar leiðbeinir starfsmaður mjólkureftirlits framleiðandanum um lausn vandans.
Starfsmenn mjólkureftirlits þjónusta bændur eftir bestu getu við úrlausn vandamála með þeirri kunnáttu og búnaði sem þeir búa yfir. Þó takmarkast það við að þeir sinna ekki stærri viðgerðum.
Áhersla er lögð á að hvetja mjólkurframleiðendur til að hafa á lager helstu slithluti sem skipta þarf um með mjög reglulegu millibili.
Vöktun á gæðaniðurstöðum
Starfsmenn mjólkureftirlitsins, með aðstoð starfsfólks og upplýsingakerfis RM og starfsfólks rannsóknarstofa MS, fylgjast vel með allri þróun á gæðaþáttum mjólkur hjá hverjum framleiðanda með reglulegum úttektum og greina með því hvort eitthvað sé að fara úrskeiðis þannig að grípa megi til forvarnaraðgerða. Hringt er í mjólkurframleiðanda eða farið í aukaheimsóknir til hans ef þurfa þykir að mati mjólkureftirlits.
Símaþjónusta
Nokkur áhersla er lögð á símaþjónustu við mjólkurframleiðendur. Þá er hringt í mjólkurframleiðendur ef ástæða þykir til og eins geta þeir hringt í mjólkureftirlitið til að fá ráðleggingar og aðstoð.
