Ferðamjólkurhús
Ferðamjólkurhúsin eru tvö og eru útbúin með öllum þeim tækjabúnaði sem þarf til að stunda mjaltir á meðan gamla mjólkurhúsið er tekið til endurbóta.
Ferðamjólkurhúsið inniheldur 1,200 lítra mjólkurtank, 200 lítra hitakút, þvottavél fyrir mjaltakerfið, 600 lítra sogdælu, endaeiningu á mjaltakerfið, þvottavask og margt fleira.
Ferðamjólkurhúsin tengjast rörakerfi fjóssins og eru slöngutengd við kalt vatn, rafmagn 1x220V þarf að tengjast við 32Amp. tengil eða beint í rafmagnstöflu.
Ferðamjólkurhúsin eru eign Mjólkursamsölunnar ehf. sem leigir þau á vægum daggjöldum. Starfsmenn mjólkureftirlits SAM sjá um útleigu á þeim. Miðað er við að leigutímabil sé allt að 14 dögum. Einnig er hægt að semja um annað sé lítil eftirspurn og sérstaklega standi á.
