Sýnataka
Gæðamálin eru einn mikilvægasti þátturinn við mjólkurframleiðsluna. Hver einasta mjólkursending frá sérhverju býli þarf að standast lágmarksgæðakröfur því ein skemmd sending getur eyðilagt tugi þúsunda lítra af mjólk. Mikilvægt er að mjólkurframleiðandinn haldi vöku sinni og tilkynni til afurðastöðvar ef minnsti grunur er um gallaða eða ónothæfa mjólk eða fargi henni á staðnum. Með fyrirbyggjandi aðgerðum, öguðum vinnubrögðum, reglubundnu eftirliti við mjaltir, kælingu og hreinlæti næst góður árangur. Eftir að mjólkinni hefur verið dælt á flutningatækin ber afurðastöðin ábyrgð á henni.
Reglubundnir mjólkurflutningar eiga einnig að tryggja fullnægjandi meðferð mjólkurinnar.
Bílstjóra ber að tryggja að mjólkursýnin fái viðeigandi meðferð þar til þau koma á áfangastað. Hann skal hafa samband við rannsóknarstofu ef eitthvað er óeðlilegt á dælingarstað og er honum óheimilt að taka einhliða ákvarðanir um dælingu eða ráðstöfun mjólkurinnar. Flutningatæki og búnaður eiga að vera til fyrirmyndar í einu og öllu, hrein og vel þrifin, enda hluti af góðri ímynd MS. Viðeigandi aðstaða fyrir mjólkursýni á að vera í hverjum bíl.
- Um Auðhumlu
- Félagsmenn
- Fræðsla og greinaskrif
- Fréttir
- Þjónustuveita bænda
- Gæðamál
- Flutningar
- Sýnataka
- Gerlar í mjólk og forvarnir
- Mikilvægi forkælingar
- Aðbúnaður mjólkurkúa
- Lyf
- Öruggar mjaltir
- Sýnishorn gæðamatsskýrslur
- Verðlagsmál
- Þjónusta við mjólkurframleiðendur
- Símaskrá
- Reglugerðir
- Leiðbeiningar og kynningar
- Bændavefur
- Sveitapósturinn
- Tenglar
Tölfræði og upplýsingar
Hér getur að líta ýmsa tölfræði og annan fróðleik um íslenska mjólkurframleiðslu og mjólkuriðnað s.s. innvigtun og sölu á mjólkurafurðum. Greinagóðar upplýsingar um mjólkuriðnaðinn í tölum. Líttu á.
Lesa meiraFræðsla og greinaskrif
Fróðlegar og gagnlegar greinar tengdar mjólkuriðnaðinu eins og mjaltatæki, mjólkurtanka, forkælingu mjólkur, gæði, hreinlæti og margt fleira. Líttu á og lærðu meira.
Lesa meira