Lyf
Óhöpp vegna þess að fúkkalyf lenda í tankmjólk og berast jafnvel inn í mjólkurstöð eru alltof algeng. Oftast verða óhöppin vegna þess að kýr, sem verið er að meðhöndla, er mjólkuð í ógáti og mjólkin fer saman við aðra mjólk. Einnig kemur fyrir að sett er á kú sem er í meðferð og það uppgötvast áður en mjólkin fer í tankinn en þess er ekki gætt að þvo spenahylki og mjólkurlögn nægilega vel. Þá hefur komið fyrir að sáraúða með fúkkalyfjum hefur verið úðað á spenasár og það hefur nægt til þess að lyf hafa fundist í mjólkinni. Til þess að koma í veg fyrir óhöpp af þessu tagi er mikilvægt að kýr, sem eru í meðferð, séu vel merktar áður en þær eru meðhöndlaðar, t.d. með bandi um báða afturfætur, þar sem mjólkað er í gryfju, eða merki á hala þar sem mjólkað er í básum eða mjaltaþjóni. Þar sem tölvukerfi er notað er mikilvægt að skrá strax í tölvuna og tvískoða að rétt númer hafi verið skráð svo kýr í meðhöndlun sé ekki mjólkuð af gáleysi.
Svokallaður útskolunartími lyfja er mislangur. Hér á eftir fer listi yfir helstu fúkkalyf samkvæmt sérlyfjaskrá í mars 2006 og hve langur tími skal líða frá síðustu lyfjagjöf þangað til senda má mjólk úr kúnni eða nota sláturafurðir samkvæmt sömu skrá. Þó að uppgefinn útskolunartími sé liðinn geta enn þá verið leifar í mjólkinni úr meðhöndluðum spenum. Þynningin verður þá nægileg til þess að lyfjamagnið fer undir leyfileg mörk. Undantekning á því getur aðeins orðið ef mjög hátt hlutfall spenanna í fjósinu hefur verið í meðhöndlun. Í vissum tilfellum gefur sérlyfjaskrá upp styttri útskolunartíma fyrir spena sem lyf hafa ekki verið sett í. Í ljósi reynslunnar er ekki mælt með því að farið sé að mjólka þá spena á undan meðhöndluðum spenum.
Dæmi um lyfjaleifar og hvað það þýðir í verðfellingu
Ef lyf finnast hjá innleggjanda er það innlegg ekki skráð. Allt annað innlegg innleggjandans er verðfellt um 15% fyrir hvert skipti sem lyfjaleifar finnast í mánuðinum. Formúlan fyrir verðfellingunni er innlegg mánaðar margfaldað með skráðu afurðastöðvaverði mjólkur margfaldað með prósentunni.
Dæmi 1
Lyf fundust hjá innleggjanda 1. Mjólkurbíllinn sótti hjá honum 2.148 lítra þann dag sem lyfin fundust. Bóndinn fær ekki greitt fyrir þessa 2.148 lítra þannig að þeir voru ekki skráðir inn í kerfið sem sér um útreikninga á greiðslum fyrir mjólk. Auk þess var skráð í kerfið að lyfjaleifar hafi fundist þennan dag. Innleggjandi 1 lagði inn 21.000 lítra í mánuðinum (fyrir utan lyfjamjólkina). Verðfellingin var því 21.000 * 47,45 * 15% = 149.137 krónur.
Dæmi 2
Lyf fundust hjá innleggjanda 2. Mjólkurbíllinn sótti hjá honum 393 lítra þann dag sem lyfin fundust. Bóndinn fær ekki greitt fyrir þessa 393 lítra þannig að þeir voru ekki skráðir inn í kerfið sem sér um útreikninga á greiðslum fyrir mjólk. Auk þess var skráð í kerfið að lyfjaleifar hafi fundist þennan dag. Innleggjandi 2 lagði inn 7.090 lítra í mánuðinum (fyrir utan lyfjamjólkina). Verðfellingin var því 7.090 * 47,45 * 15% = 50.351 króna.
- Um Auðhumlu
- Félagsmenn
- Deildafundir 2010
- Fræðsla og greinaskrif
- Fréttir
- Tilkynningar
- Þjónustuveita bænda
- Gæðamál
- Flutningar
- Sýnataka
- Gerlar í mjólk og forvarnir
- Mikilvægi forkælingar
- Aðbúnaður mjólkurkúa
- Lyf
- Öruggar mjaltir
- Sýnishorn gæðamatsskýrslur
- Verðlagsmál
- Þjónusta við mjólkurframleiðendur
- Símaskrá
- Reglugerðir
- Leiðbeiningar og kynningar
- Bændavefur
- Sveitapósturinn
- Tölfræði og upplýsingar
- Tenglar
- Samsala í 70 ár
Tölfræði og upplýsingar
Hér getur að líta ýmsa tölfræði og annan fróðleik um íslenska mjólkurframleiðslu og mjólkuriðnað s.s. innvigtun og sölu á mjólkurafurðum. Greinagóðar upplýsingar um mjólkuriðnaðinn í tölum. Líttu á.
Lesa meiraFræðsla og greinaskrif
Fróðlegar og gagnlegar greinar tengdar mjólkuriðnaðinu eins og mjaltatæki, mjólkurtanka, forkælingu mjólkur, gæði, hreinlæti og margt fleira. Líttu á og lærðu meira.
Lesa meira