Samsala í sjötíu ár
Út er komin bókin Samsala í sjötíu ár sem fjallar um sögu Mjólkursamsölunnar í Reykjavík frá stofnun 1935 til ársins 2005. Bókinni er skipt í fjóra megin kafla eftir tímaskeiðum:
1. 1935-1945 Mjólkursamsalan verður til
2. 1945-1965 Sögulegar sættir og ný mjólkurstöð
3. 1965-1985 Traust fyrirtæki á stöðugum tímum
4. 1985-2005 Nýtt athafnasvæði – útþenslutímar og uppstokkun
Saga Samsölunnar hefur oft verið mörkuð átökum í samfélaginu á hverjum tíma og innan hennar hafa einnig tekist á þróttmiklir einstaklingar og margvíslegir hagsmunir. Frá þessu greinir á lifandi hátt og litríkan í sögunni sem Óskar Guðmundsson rithöfundur hefur tekið saman og skráð. Bókin er 368 bls. að lengd og prýdd miklum fjölda ljósmynda og annars myndefnis sem og tilheyrandi töflum og skrám.
Samsala í sjötíu ár greinir frá langvinnum fæðingarhríðum Mjólkursamsölunnar í Reykjavík, en giftusamlegri samvinnu bænda og neytenda og líflegum samskiptum þeirra um málefni Samsölunnar fram eftir tuttugustu öld. Í bókinni er fjallað um þróun markaðar, byltingu á verslunarháttum og afskipti ríkisvaldsins af atvinnugreininni. Þar segir frá margvíslegum þáttaskilum sem orðið hafa á tímabilinu bæði í sögu Samsölunnar og þjóðfélaginu öllu. Gífurlegar breytingar sem orðið hafa í vöruþróun og markaðsmálum hafa og leitt til mikilla umbrota meðal framleiðenda sem hafa þurft að ganga í gegnum samdrátt og sársaukafulla uppstokkun og fækkun. En Samsölusagan er einnig saga uppbyggingar og sköpunar, - að ýmsu leyti saga farsælla breytinga fyrir íslenskan landbúnað og neytendur. Sjötíu ára sagan endar einmitt með því að Mjólkursamsalan í Reykjavík hætti starfsemi í víðtækri sameiningu fyrirtækja og uppstokkun í íslenskum mjólkuriðnaði sem undirbýr sig undir erlenda samkeppni.
Bókin Samsala í sjötíu ár er ætluð mjólkurframleiðendum, starfsfólki Mjólkursamsölunnar á afmælisárinu 2005 og öðrum þeim sem tengdir voru Samsölunni með einhverjum hætti á síðustu starfsárum hennar.
Hefur þú áhuga hafa á að eignast bókina þér að kostnaðarlausu?
Fylltu út formið hér að neðan og nældu þér í eintak. Við munum svo senda þér bókina þér að kostnaðarlausu.
