30. september 2013

Öll mjólk keypt á fullu afurðastöðvarverði til áramóta

Áframhaldandi söluaukning mjólkurafurða:
Öll framleiðsla bænda keypt
á fullu afurðastöðvaverði til áramóta
 
Frá ársbyrjun hefur orðið veruleg söluaukning í smjöri, rjóma, ostum, drykkjarmjólk og fleiri afurðum. Mjólkursamsalan býst við áframhaldandi sömu þróun næstu vikur og fyrirtæki í mjólkuriðnaði hafa ákveðið að kaupa alla framleiðslu bænda fullu afurðastöðvaverði frá októberbyrjun til áramóta. Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði hafa einnig lagt til að greiðslumark næsta árs, sem er samanlagður framleiðsluréttur bænda fyrir innanlandsmarkað, verði aukin úr 116 milljónum lítra í 123 milljónir lítra.
„Íslenskir neytendur eru að auka neyslu mjólkurafurða og það er vitaskuld mikið ánægjuefni fyrir íslenska kúabændur“, segir Einar Sigurðsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar. „Fyrirtæki bænda í mjólkuriðnaði leggur mikið uppúr vöruþróun og vörugæðum. Árangurinn er ótvíræður í sölu á nýjum vörum og gamalgrónum vörum á borð við til dæmis smjör. Söluaukningu í smjöri milli ára má líkja við sprengingu. Þetta er mjög mikill hvati fyrir bændur og þeir hafa sett sér að mæta þessari auknu eftirspurn sem er fyrirsjáanleg áfram á næstu misserum.“

Nánari upplýsingar gefur
Einar Sigurðsson
s. 560 2200

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1242