24. júní 2009

Sveitapósturinn júní 2009

Í leiðara blaðsins að þessu sinni fjallar Magnús Ólafsson, forstjóri Auðhumlu um greiðslumarksákvörðun næsta árs, forsendur fyrir kaupum á umframmjólk næsta árs og ESB tillögur á Alþingi. Bændur í Breiðafjarðardeild fóru i flotta ferð og Sævar í Búðardal segir frá. Það eru ekki allir félagsmenn sem þekkja stjórnarmenn Auðhumlu og því er hleypt af stokkum kynningu á þeim. Í blaðinu segir af Birnu Þorsteinsdóttur bónda á Reykjum á Skeiðum. Birna situr í stjórn Auðhumlu og er varamaður í stjórn MS. Að vanda eru svo tölulegar upplýsingar.

Hér getur þú nálgast nýjasta sveitapóstinn og eldri útgáfur

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1242