13. nóvember 2008

Breytingar hjá Auðhumlu

Í tengslum við skipulagsbreytingar hjá Mjólkursamsölunni hefur stjórn Auðhumlu ákveðið að skilja rekstur Auðhumlu betur frá rekstri Mjólkursamsölunnar en verið hefur.
Auðhumla flytur alla starfsemi sína að Austurvegi 65 á Selfossi þann 15. nóv n.k. Auðhumla svf. er samvinnufélag bænda og tekur á móti allri mjólk frá framleiðendum og afreiknar til þeirra. Önnur starfsemi er eignarhald, fasteignastarfsemi víðs vegar um landið, útlán til framleiðenda, fjárvarsla, bókhald og fjárreiður þessu tengt. Síðan en ekki síst er haldið utan um félagaskrá og félagsleg málefni.
Forstöðumaður skrifstofunnar er Garðar Eiríksson. Auk hans starfar þar Guðmundur Theodórsson hagfræðingur. Garðar og Guðmundur störfuðu áður hjá Mjólkurbúi Flóamanna og síðan hjá Mjólkursamsölunni ehf. við skyld störf. 
Símanúmer og netföng verða sem hér segir:
Garðar Eiríksson 480-1606 gardare@audhumla.is
Guðmundur Theodórsson 480-1608 gth@audhumla.is
Fax 480-1610

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1242