25. febrúar 2008

Sveitapósturinn 2. tbl. 2008

Febrúarblað Sveitapóstsins er komið út.

Þar ræðir Guðbrandur m.a. um skipulag deildafunda og birt er yfirlit yfir fundina sem haldnir verða á tímabilinu 25. feb. - 27. mars. Þá segir hann frá væntanlegum aðalfundi Auðhumlu sem haldinn verður að Hlöðum á Hvalfjarðarströnd föstudaginn 11. apríl nk. og hefst kl. 13:00. Einnig ræðir hann beingreiðslur o.fl. en töluverð umræða hefur verið undanfarið um styrkjakerfi landbúnaðarins og framtíðarhorfur.

Sagt er frá flutningi á Rannsóknarstofu SAM (áður Rannsóknarstofu mjólkuriðnaðarins). Einnig fréttir frá MS Akureyri, þar var met í innvigtun mjólkur á árinu 2007 og töluverðar breytingar framundan í starfseminni á þessu ári.

Bændaviðtalið er við Báru H. Sigurðardóttur á Lyngbrekku í Dalabyggð. Lyngbrekkubúið var afurðahæsta kúabú landsins á síðasta ári, árskýr eru samkvæmt skýrsluhaldi 58,6 og meðalnyt kúnna 7.881 lítri. Óskum við þeim Lyngbrekkubændum til hamingju með þennan glæsilega árangur.

Hér getur þú nálgast nýjasta Sveitapóstinn og einnig eintök af eldri tölublöðum.

Til baka

Auðhumla

Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 500 mjólkurframleiðenda um land allt. Auðhumla hefur það hlutverk að taka við mjólk frá félagsmönnum sínum og umbreyta í mjólkurafurðir sem eru seldar á markaði á Íslandi og erlendis. Það gerir félagið með aðkomu sinni og eign í Mjólkursamsölunni ehf. Auðhumla er móðurfélag Mjólkursamsölunnar ehf.

Lesa meira

Gæðaráðgjafar

Hans Egilsson: Sími 861-4775

Sigurður Grétarsson: Sími 861-4772

Elin Nolsöe Grethardsdóttir: Sími 892-0397

Steinþór Guðjónsson: Sími 836 4770

RM rannsókn: Sími 450-1242